Fréttir

Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta

21/11/2007

Jafnréttisstofa í samstarfi við Ár jafnra tækifæra og félagsmálaráðuneytið efnir til ráðstefnunnar Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta þann 23. nóvember klukkan 13–16 í Sunnusal Hótel Sögu. Kynntar verða niðurstöður rannsóknar á kynbundnum launamun sem unnin var upp úr gögnum Hagstofu Íslands um atvinnutekjur þjóðarinnar. Í rannsókninni voru skoðaðar atvinnutekjur og heildartekjur kynjanna eftir hjúskaparstöðu, aldri og búsetu. Einnig verða ræddar ólíkar aðferðir sem notaðar hafa verið til að vinna bug á þeim vanda sem kynbundinn launamunur er.

Dagskrá:

13:00     Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra setur fundinn.

13:10      Tekjumunur karla og kvenna: Upplýsingar úr skattframtölum. 
                 Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri rannsóknarsviðs Jafnréttisstofu.

13:45      Kynjavöktun í aðdraganda kjarasamninga.
                Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi Alþýðusambands Íslands.

14:05     Áform og aðgerðir - til að greina og eyða kynbundnum launamun.
               Sigríður Lillý Baldursdóttir, starfandi forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins.

14:25     Kaffihlé.

14:45     Tala minna – gera meira.
                Ingibjörg Óðinsdóttir, forstöðumaður mannauðssviðs Skýrr.

15:05     Markvissar aðgerðir skila árangri.
               Anna Jörgensdóttir, starfsmannastjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar.

15:25     Pallborðsumræður.

 

Fundarstjóri: Mörður Árnason, varaformaður Jafnréttisráðs.

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

Senda grein

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: