Almennt

Almennar upplýsingar um öldrunarmál

Lög um málefni aldraðra

Velferðarráðherra fer með yfirstjórn öldrunarmála samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999. Ráðuneytið annast stefnumótun og áætlanagerð um málefni aldraðra fyrir landið í heild og hefur eftirlit með framkvæmd laga um málefni aldraðra og reglugerðum settum á grundvelli þeirra laga.

Markmið laga um málefni aldraðra er að tryggja að aldraðir eigi völ á þeirri heilbrigðis- og félagsþjónustu sem þeir þurfa á að halda og að hún sé veitt á því þjónustustigi sem er eðlilegast miðað við þarfir hvers og eins. Einnig er markmið laganna að aldraðir geti eins lengi og unnt er búið við eðlilegt heimilislíf en sé jafnframt tryggð stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf. Við framkvæmd laganna skal þess gætt að aldraðir njóti jafnréttis á við aðra þjóðfélagsþegna og að sjálfsákvörðunarréttur þeirra sé virtur.

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra

Velferðarráðherra skipar fimm manna samstarfsnefnd um málefni aldraðra. Hlutverk hennar er að vera ráðherra og ríkisstjórn til ráðgjafar um málefni aldraðra og vera tengiliður milli ráðuneyta, stofnana og samtaka sem starfa að málefnum aldraðra. Samstarfsnefndin fer einnig með stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra

Framkvæmdasjóður aldraðra

Framkvæmdasjóður aldraðra fær tekjur af sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á alla sem eru skattskyldir, að undanskildum börnum yngri en 16 ára, þeim sem eru 70 ára og eldri og þeim sem hafa tekjur undir ákveðnum tekjumörkum sem skilgreind eru í lögum um málefni aldraðra. Fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra skal varið til uppbyggingar þjónustumiðstöðva, dagvista og stofnana fyrir aldraða og til breytinga og endurbóta á slíku húsnæði. Sjóðurinn fjármagnar viðhald á húsnæði dagvistar-, dvalar- og hjúkrunarheimila og fé úr honum er einnig varið til ýmissa annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu.

Þjónustuhópar aldraðra

Í hverju heilsugæsluumdæmi starfar þjónustuhópur aldraðra. Í honum sitja læknir með sérmenntun á sviði öldrunar- eða heimilislækninga, hjúkrunarfræðingur með þekkingu á öldrunarþjónustu, tveir fulltrúar sveitarstjórnar með þekkingu á félagslegri þjónustu við aldraða og einn fulltrúi samtaka eldri borgara á svæðinu. Hlutverk þjónustuhóps aldraðra er að fylgjast með heilsufari og félagslegri velferð aldraðra og samhæfa þjónustu, gera tillögur til sveitarstjórna um öldrunarþjónustu og leitast við að tryggja að aldraðir fái þá þjónustu sem þeir þarfnast og kynna öldruðum þá kosti sem í boði eru.

Öldrunarþjónusta

Helstu þættir þjónustu við aldraða eru heimaþjónusta og þjónusta í þjónustumiðstöðvum aldraðra á vegum sveitarfélaga, heimahjúkrun á vegum heilsugæslustöðva, dagvistun, endurhæfingar- og hvíldarinnlagnir eða búseta í dvalarrými eða hjúkrunarrými á stofnunum aldraðra.



Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: