Almennt
Framkvæmdasjóður aldraðra
Auglýsing vegna umsókna fyrir árið 2010
Auglýst er eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2010.
Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 1033/2004. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til félags- og tryggingamálaráðherra um úthlutun úr honum.
Heimilt er að veita framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra til eftirtalinna verkefna:
- Bygginga þjónustumiðstöðva aldraðra og dagvista.
- Bygginga dvalarheimila og sambýla.
- Bygginga hjúkrunarheimila eða hjúkrunarrýma á öldrunarstofnunum.
- Breytinga og endurbóta á húsnæði stofnana sbr. a – c lið.
- Annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu.
Við ákvörðun um úthlutun verður höfð hliðsjón af stefnu félags- og tryggingamálaráðherra í öldrunarmálum einkum varðandi fækkun fjölbýla á hjúkrunarheimilum. Skilyrði fyrir framlögum til byggingaframkvæmda, breytinga og endurbóta á húsnæði er að framkvæmdir taki mið af viðmiðum félags- og tryggingamálaráðuneytisins um skipulag hjúkrunarheimila.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2010. Umsóknum skal skila til félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin má einnig nálgast hér:
- Umsókn vegna viðhalds og endurbóta
- Umsókn vegna nýframkvæmda
- Umsókn um framlag til annarra verkefna en byggingarframkvæmda
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra
