Þjónusta
Þjónusta við aldraða
Félagsleg heimaþjónusta
Aldraðir í heimahúsum eiga rétt á heimaþjónustu geti þeir ekki hjálparlaust annast heimilishald og persónulega umhirðu. Sveitarfélög veita þessa þjónustu á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 en setja sjálf nánari reglur um framkvæmdina.
Heimahjúkrun
Heimahjúkrun er ætlað að gera þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Heilsugæslustöðvar annast alla jafna heimahjúkrun, þó ekki í heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins þar sem heimahjúkrun er veitt af Heimaþjónustu Reykjavíkur, sem heyrir undir Velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Þar hefur félagsleg heimaþjónusta og heimahjúkrun verið sameinuð. Á Akureyri og Höfn í Hornafirði heyrir heimahjúkrun einnig undir sveitarfélagið. Ekkert gjald er tekið fyrir heimahjúkrun.
Félagsstarf aldraðra
Mörg sveitarfélög starfrækja félagsmiðstöðvar þar sem fram fer félagsstarf. Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk námskeiða. Félagsstarfið stuðlar að samskiptum og veitir félagsskap, þar er meðal annars boðið upp á mat og kaffi, tómstundaiðju og hreyfingu. Nánari upplýsingar fást hjá sveitarfélögum.
Þjónustuíbúðir
Sum sveitarfélög leigja út þjónustuíbúðir til eldri borgara sem þurfa meiri þjónustu en hægt er að fá í heimahúsum, án þess að hafa þörf fyrir vist á dvalar- eða hjúkrunarheimili. Í lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 er skilgreint hvaða þjónusta skuli veitt í þjónustuíbúðum og segir að í þeim skuli vera öryggiskerfi og völ á fjölbreyttri þjónustu, svo sem mat, þvotti og þrifum, og aðgangur að félagsstarfi. Íbúar í þjónustuíbúðum eiga sama rétt á heimaþjónustu og aðrir íbúar sveitarfélagsins. Upplýsingar um þjónustuíbúðir eru veittar hjá viðkomandi sveitarfélögum.
Dagvistun
Flest stærri sveitarfélög gefa kost á dagvistun fyrir þá sem búa í heimahúsum. Dagvistun felur í sér tímabundna dvöl í félagsmiðstöð við tómstundaiðkun, aðstöðu til léttra líkamsæfinga, máltíð, hvíldaraðstöðu eða böðun og snyrtingu. Akstur til og frá heimili er innifalinn en greiðsla fyrir þjónustu dagvistunar er mismunandi. Hægt er að sækja um dagvistun hjá viðkomandi stofnun, en á höfuðborgarsvæðinu eru biðlistar og umsóknir vegna dagvistar fyrir heilabilaða í umsjón minnismóttökunnar á Landakoti. Forsenda fyrir úthlutun í dagvistun er að einstaklingurinn hafi greinst með heilabilunarsjúkdóm.
Hvíldar-/endurhæfingarinnlögn
Víða á hjúkrunarheimilum og heilbrigðisstofnunum er boðið upp á hvíldar- eða endurhæfingarinnlagnir fyrir aldraða. Slík innlögn getur hentað öldruðum sem hafa lagst inn á spítala og þurfa tímabundna umönnun og endurhæfingu áður en þeir geta farið heim. Eins er þessu úrræði ætlað að styðja við sjálfstæða búsetu aldraðra þegar tímabundin hvíld og endurhæfing getur haft jákvæð áhrif á getu hins aldraða til að búa heima, samhliða því að vera stuðningur við aðstandendur sem oft gegna mikilvægu hlutverki í stuðningsneti aldraðra. Sótt er um hvíldarinnlögn hjá viðkomandi stofnun eða hjá heimahjúkrun í viðkomandi heilbrigðisumdæmi.
Dvalarrými
Dvalarrými eru á hefðbundnum dvalarheimilum, sambýlum eða í íbúðum í húsnæði sem er sérhannað fyrir þarfir aldraðra sem ekki eru færir um að annast heimilishald þrátt fyrir heimaþjónustu. Skilgreint er í lögum um málefni aldraðra og reglugerð um stofnanaþjónustu aldraðra hvaða þjónusta skuli vera fyrir hendi í dvalarrýmum, en þar á meðal annars að vera varsla allan sólarhringinn, öryggiskerfi í hverri íbúð og völ á fjölbreyttri þjónustu, svo sem mat, þvotti, þrifum og félags- og tómstundastarfi.
Umsókn og mat á þörf fyrir vistun í dvalarrými
Sótt er um dvalarrými hjá félagsþjónustu í sveitarfélagi umsækjanda. Úthlutun dvalarrýmis skal veitt að undangengnu mati á þörf. Félags- og tryggingamálaráðherra skipar matsteymi dvalarrýma í hverju heilbrigðisumdæmi, samkvæmt reglugerð um mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými nr. 543/2008, sem í sitja félagsráðgjafi og hjúkrunarfræðingur. Yfirumsjón með framkvæmd dvalarrýmismats er á hendi velferðarráðuneytisins.
Hjúkrunarrými
Hjúkrunarrými eru á hjúkrunarheimilum og heilbrigðisstofnunum, ætluð öldruðu fólki sem er of lasburða til að geta búið heima með þeim stuðningi sem er í boði, svo sem heimaþjónustu, heimahjúkrun, dagvist, hvíldarinnlögn eða vistun í dvalarrými. Í hjúkrunarrými skal veitt hjúkrunar- og læknisþjónusta auk endurhæfingar og annarrar þjónustu sem skilgreind er í lögum um málefni aldraðra og reglugerð um stofnanaþjónustu aldraðra.
Umsókn og mat á þörf fyrir vistun í hjúkrunarrými
Sótt er um hjúkrunarrými hjá vistunarmatsnefnd í heilsugæsluumdæmi umsækjanda. Vistunarmatsnefnd annast mat á þörf fyrir vistun í hjúkrunarrými. Í nefndunum eiga sæti læknir með sérmenntun á sviði öldrunar- eða heimilislækninga, hjúkrunarfræðingur með þekkingu á öldrunarþjónustu og félagsráðgjafi með þekkingu á félagslegri þjónustu við aldraða. Yfirumsjón með framkvæmd vistunarmats er á hendi landlæknisembættisins.
