Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra, Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra og Björn Ingimarsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs undirrituðu í dag samning um byggingu hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum fyrir 40 heimilismenn. Húsnæðið verður tekið í notkun um mitt ár 2014.
Lesa meira
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2012 í samræmi við tillögur stjórnar sjóðsins. Úthlutað var fé til framkvæmda á níu dvalar- og hjúkrunarheimilum sem stuðla að bættum aðbúnaði aldraðra, samtals um 150 milljónum króna.
Lesa meira
Vegna umræðu um greiðslur fólks fyrir dvöl á hjúkrunarheimilum og innheimtu dvalarkostnaðar birtir velferðarráðuneytið samantekt um gildandi fyrirkomulag þessara mála.
Lesa meira
Ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi mun leggja mat á þörf fólks fyrir búsetu í dvalar- eða hjúkrunarrými í stað tveggja. Frumvarp velferðarráðherra þessa efnis varð að lögum frá Alþingi í gær. Markmiðið er að auðvelda fólki að sækja um dvöl á stofnun og einfalda stjórnsýsluna. Lög um þessar breytingar taka gildi 1. júní næstkomandi.
Lesa meiraÁ vef velferðarráðuneytisins hefur verið opnað vefsvæði með upplýsingum um störf nefndar sem vinnur að undirbúningi að yfirfærslu málefna aldraðra til sveitarfélaganna.
Lesa meira
„Mér finnst það nú ekki alveg passa að eldra fólk sé ekki tæknivætt þar sem langafi minn til dæmis, sem er orðinn 88 ára, á gsm síma, tölvu og var að kaupa sér iPad spjaldtölvu fyrir ekki svo löngu“ sagði fulltrúi ungu kynslóðarinnar sem tók til máls á ráðstefnunni.
Lesa meira
Velferðarráðuneytið, Landssamband eldri borgara og Öldrunarráð Íslands standa fyrir ráðstefnu um virkni á efri árum - samband og samstöðu kynslóða þann 14. mars næstkomandi. Ráðstefnan er liður í þátttöku Íslands í verkefnum og viðburðum sem tengjast Evrópuárinu 2012 sem helgað er þessu málefni.
Lesa meira
Ríkisendurskoðun segir í nýrri skýrslu um úttekt á rekstri hjúkrunarheimila á árunum 2008-2010 að þrátt fyrir lækkun fjárveitinga til þeirra verði hvorki séð að álag á starfsfólk hafi aukist á tímabilinu né að dregið hafi verið úr þjónustu við íbúa. Skýrslan var unnin að beiðni forsætisnefndar Alþingis.
Lesa meira
Nefndir sem annast mat á þörf fólks fyrir vistun í dvalarrými eða hjúkrunarrými verða sameinaðar, samþykki Alþingi frumvarp þess efnis sem Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra mælti fyrir á Alþingi í dag. Markmið breytinganna er að auðvelda fólki að sækja um stofnanavistun og einfalda stjórnsýsluna.
Lesa meiraFrestur til að sækja um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2012 rennur út 1. febrúar næstkomandi. Hlutverk Framkvæmdasjóðs aldraðra er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.
Lesa meira