Almennt

Almennar upplýsingar um vinnumál

Lög hafa verið sett hér á landi varðandi ýmsa þætti í vinnurétti. Með þeim er kveðið á um grundvallarreglur sem varða réttindi og skyldur launafólks og atvinnurekenda. Lögin kveða yfirleitt á um lágmarksréttindi og eru samningar um lakari rétt en kveðið er á um lögunum þá ógildir.

Almenn vinnulöggjöf heyrir undir velferðarráðuneytið, sem fer með yfirstjórn þessa málaflokks en undirstofnanir ráðuneytisins, Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun, fara með framkvæmd einstakra málaflokka. Sérstök löggjöf varðandi opinbera starfsmenn fellur undir fjármálaráðuneytið. Hafa ber í huga að ýmiss konar sérreglur gilda um afmarkaða hópa á vinnumarkaði, svo sem sjómenn og bankamenn. Þá er kveðið á um réttindi launafólks í kjarasamningum aðila vinnumarkaðsins.



Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica