Félagsdómur

Almennar upplýsingar

1. Almennt

Félagsdómur er sérdómstóll sem starfar á grundvelli laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.

2. Hlutverk

Hlutverk Félagsdóms er að dæma í réttarágreiningi aðila vinnumarkaðarins, nánar tiltekið í eftirfarandi málum:

  1. Sem rísa út af kærum um brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur og tjóni sem orðið hefur vegna ólögmætra vinnustöðvana.
  2. Út af kærum um brot á vinnusamningi eða ágreiningi um skilning á vinnusamningi eða gildi hans.
  3. Öðrum málum milli verkamanna og atvinnurekenda sem aðilar hafa samið um að leggja fyrir dóminn enda séu a.m.k. 3 af dómendum því meðfylgjandi.
Þá er heimilt að leita úrskurðar Félagsdóms um hvort starfsemi geti talist vera iðnaður og til hvaða iðngreinar hún taki.

Samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna og um kjarasamninga starfsmanna banka í eigu ríkisins dæmir Félagsdómur í ákveðnum tegundum mála þessarra starfsmanna.
 

3. Skipan Félagsdóms

Í Félagsdómi eiga sæti 5 menn sem skipaðir eru til þriggja ára.
 

4. Sérdómstóll – eitt dómstig

Ekki er heimilt að flytja mál fyrir almennum dómstólum sem höfða má fyrir Félagsdómi nema Félagsdómur hafi neitað að taka málið til meðferðar, sbr. 47. gr. laga nr. 80/1938. Þá eru úrskurðir og dómar Félagsdóms endanlegir og verður almennt ekki áfrýjað.
 

5. Meðferð mála fyrir Félagsdómi

Málsmeðferð fyrir Félagsdómi fer að miklu leyti eftir lögum um meðferð einkamála. Meðferðin er þó frábrugðin í nokkrum atriðum, einkum að því er lítur að hraða í málsmeðferð.



Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica