Fréttir

´Til vinnu: Frá undirritun samnings

Allt að 1.500 atvinnuleitendum tryggð störf í samstarfi ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs - 16/12/2011

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að ráðast strax í byrjun næsta árs í öflugar aðgerðir sem eiga að tryggja allt að 1.500 atvinnuleitendum störf eða starfstengd úrræði. Ásamt stjórnvöldum standa sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins að átakinu, sem ber yfirskriftina „TIL VINNU“.

Lesa meira
 

Samþykkt að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót - 22/11/2011

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu velferðarráðherra um að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót. Óskert desemberuppbót til þeirra sem eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verður 63.457 krónur.

Lesa meira
 
Vinnumál

Vinnuvernd og ábyrgð atvinnurekenda - 26/10/2011

Talið er að 15-20% allra vinnuslysa tengist viðhaldsvinnu og um 10-15% allra banaslysa. Í grein velferðarráðherra í Fréttablaðinu í dag fjallar hann um ávinninginn af öflugu vinnuverndarstarfi, starfsemi Vinnueftirlitsins og ábyrgð atvinnurekenda. Íslendingar taka þátt í evrópskri vinnuverndarviku sem nú stendur yfir.

Lesa meira
 

Svanni; lánatryggingasjóður kvenna tekur til starfa - 22/9/2011

Lánatryggingasjóður kvenna sem hlotið hefur nafnið Svanni verður formlega settur á laggirnar á morgun. Sjóðurinn er í eigu velferðarráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar. Markmiðið er að styðja konur til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífinu með veitingu ábyrgða á lánum.

Lesa meira
 

Breytingar á lögum um starfsmannaleigur - 19/9/2011

Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um starfsmannaleigur. Breytingarnar varða einkum tímafresti varðandi upplýsingar sem starfsmannaleigum sem hyggjast veita þjónustu hér á landi ber að veita Vinnumálastofnun og afgreiðslufrest Vinnumálastofnunar.

Lesa meira
 

Rýmri réttur starfsfólks til töku orlofs í kjölfar veikinda - 19/9/2011

Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um orlof sem veita starfsfólki rýmri rétt en áður til töku orlofs í kjölfar veikinda.

Lesa meira
 

Framtíðarskipan atvinnumála fatlaðs fólks - 8/9/2011

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað starfshóp til að fjalla um framtíðarskipan atvinnumála fatlaðs fólks.

Lesa meira
 

Endurskoðun reglna í tengslum við einelti á vinnustöðum - 8/9/2011

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað nefnd sem falið  hefur verið að endurskoða reglur sem fram koma í lögum og reglugerðum  í tengslum við einelti á vinnustöðum, þar á meðal vegna kynferðislegrar áreitni.

Lesa meira
 

Réttarstaða atvinnuleitenda bætt sem og starfsfólks við aðilaskipti - 7/9/2011

Þátttaka atvinnuleitanda í starfstengdu vinnumarkaðsúrræði skerðir ekki lengur rétt hans til atvinnuleysisbóta, samkvæmt frumvarpi velferðarráðherra sem samþykkt hefur verið á Alþingi. Einnig hefur verið samþykkt breyting á lögum sem bætir réttarstöðu starfsfólks við aðilaskipti í kjölfar gjaldþrots fyrirtækis.

Lesa meira
 
Nám er vinnandi vegur - velferðarráðherra

Nám er vinnandi vegur: Fjöldi ungmenna og atvinnuleitenda hefur nám - 6/9/2011

Rúmlega 1.100 atvinnuleitendur hefja nám í haust á grundvelli átaksins „Nám er vinnandi vegur“ og um 1.040 ungmenni yngri en 25 ára hafa skráð sig í framhaldsskóla í tengslum við átakið. Samningur um framkvæmd verkefnisins var undirritaður í dag.

Lesa meira
 

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica