Fréttir

Starfsmannaleigur - greinargerð unnin fyrir félagsmálaráðuneytið - 6/12/2005

Í greinargerð um starfsmannaleigur er fjallað um starfsmannaleigur og réttindi leigustarfsmanna. Markmiðið er að gera grein fyrir útleigustarfsemi og reglum sem gilda um hana hér á landi og í nágrannaríkjunum og vera þannig til stuðnings við mat á því hvort og þá með hvaða hætti rétt sé að setja sérstök lög um starfsmannaleigur hér á landi.

Lesa meira
 

Ársfundur Vinnumálastofnunar 2005 - 29/9/2005

Ársfundur Vinnumálastofnunar verður haldinn í dag, fimmtudaginn 29. september. Fundurinn stendur frá kl. 14-16. Lesa meira
 
Stjórn

Rannsóknarsetur vinnuréttar og jafnréttismála - 26/9/2005

Fyrsti fundur stjórnar Rannsóknarseturs vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst var haldinn 23. september sl. Setrið starfar á grundvelli samstarfssamnings á milli félagsmálaráðherra og Viðskiptaháskólans. Lesa meira
 

Starfshópur um efni gerða um bann við mismunun - 13/9/2005

Að tillögu félagsmálaráðherra hefur ríkisstjórnin samþykkt að skipaður verði starfshópur sem ætlað er að fjalla um með hvaða hætti endurspegla megi efni gerða Evrópusambandsins um bann við mismunun að þeim reglum sem gilda á innlendum vinnumarkaði. Lesa meira
 

2. fundur verkefnisstjórnar 50+ um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði - 1/8/2005

Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Annar fundur af þremur verður haldinn á Grand hótel, Hvammi þann 9. nóvember næstkomandi klukkan 8.30?10.00. Lesa meira
 

Norrænt atvinnuleysistryggingamót á Akureyri - 15/6/2005

Ræða félagsmálaráðherra á norræna atvinnuleysistryggingamótinu á Akureyri 14.–16. júní 2005. Lesa meira
 
Starfsmenntaráð

Úthlutun úr starfsmenntasjóði - 1/6/2005

Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins, sem starfar skv. lögum nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu, hefur úthlutað vegna ársins 2005 rúmlega 48 milljónum króna úr starfsmenntasjóði til 42 verkefna. Lesa meira
 
Ársfundur Vinnueftirlits ríkisins 18. maí 2005

Vinnueftirlit ríkisins - 20/5/2005

Ræða félagsmálaráðherra á ársfundi Vinnueftirlits ríkisins. Lesa meira
 

Málþing um starfsendurhæfingu - 27/4/2005

Dagana 14. og 15. apríl stóð félagsmálaráðuneytið fyrir fjölmennu málþingi um starfsendurhæfingu, í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og Tryggingastofnun ríkisins. Lesa meira
 

Málþing um starfsendurhæfingu - 13/4/2005

Dagana 14. og 15. apríl stendur félagsmálaráðuneytið fyrir málþingi um starfsendurhæfingu, í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og tryggingastofnun ríkisins. Lesa meira
 

Málþing um starfsendurhæfingu - 1/4/2005

Þann 14. og 15. apríl næstkomandi stendur félagsmálaráðuneytið fyrir málþingi um starfsendurhæfingu, í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og tryggingastofnun ríkisins. Lesa meira
 
Frá fundi félagsmálaráðherra OECD-ríkjanna

Fundur félagsmálaráðherra OECD-ríkjanna - 31/3/2005

Sjálfstæður réttur feðra til fæðingarorlofs á Íslandi vekur athygli á fundi félagsmálaráðherra OECD-ríkja sem nú stendur yfir í París. Íslendingar standa mjög framarlega varðandi atvinnuþátttöku kvenna. Félagsmálaráðherra leggur áherslu á jafnar aðstæður kvenna og karla til virkrar þátttöku á vinnumarkaði. Lesa meira
 

Reglugerð um atvinnuréttindi útlendinga - 23/3/2005

Félagsmálaráðherra undirritaði í dag reglugerð um atvinnuréttindi útlendinga og hefur hún verið send í birtingu til Stjórnartíðinda. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra leggur fram á Alþingi skýrslu um þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar - 1/3/2005

Í samræmi við stofnskrá Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) hefur félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, lagt fram á Alþingi skýrslu um Alþjóðavinnumálaþingin í Genf sem voru haldin árin 2001–2004. Lesa meira
 
7. Evrópuþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO)

Evrópuþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í Búdapest - 23/2/2005

Dagana 14.–18. febrúar 2005 var haldið 7. Evrópuþing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO). Þingið var haldið í Búdapest í Ungverjalandi. Lesa meira
 

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica