Beint í leiðarkerfi vefsins.
Verkefnisstjórn 50+ stendur fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 19. nóvember 2008 kl. 8.30–10.00 á Grand hóteli í Reykjavík þar sem fjallað verður um stöðu miðaldra og eldra fólks nú þegar þrengir að á vinnumarkaði.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra fjallaði um alvarlega stöðu á vinnumarkaði og mögulegar aðgerðir til að sporna við vaxandi atvinnuleysi þegar hún ávarpaði ársfund Vinnumálastofnunar sem haldinn er í dag.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við Staðlaráð Íslands að það hafi umsjón með gerð staðals um launajafnrétti kynjanna sem atvinnurekendur geta síðan fengið formlega vottun fyrir.
Lesa meiraÞau áföll sem riðið hafa yfir þjóðina á síðustu vikum hafa skapað ríkari nauðsyn en ella til að huga sérstaklega vel að öflugu vinnuverndarstarfi sagði í ávarpi félags- og tryggingamálaráðherra við upphaf vinnuverndarviku sem sett var í dag.
Lesa meiraÞátttaka eldra fólks á vinnumarkaði er og verður áfram lykill að velferð samfélagsins sagði félags- og tryggingamálaráðherra á ráðstefnu verkefnisstjórnar 50+ sem haldin var í dag undir yfirskriftinni: Eldri starfsmenn - akkur vinnustaða.
Lesa meiraÞað hefur sýnt sig að stuðningur við konur í atvinnulífinu skilar árangri og góðum verkefnum sagði félags- og tryggingamálaráðherra við opnun nýrrar heimasíðu verkefnis um atvinnumál kvenna í dag (www.atvinnumalkvenna.is). Framlag til verkefnisins var tvöfaldað á þessu ári.
Lesa meiraClaus Hjort Frederiksen, atvinnumálaráðherra Danmerkur, og Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, ræddu ýmis málefni á sviði velferðar- og vinnumála á fundi í morgun. Ráðherrann er í stuttri heimsókn til þess að kynna sér þessi mál á Íslandi.
Lesa meiraÞing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) samþykkti 10. júní síðastliðinn yfirlýsingu um félagslegst réttlæti á alþjóðavettvangi og hvernig mæta megi mögulegum neikvæðum áhrifum alþjóðavæðingar efnahagslífsins á félags- og vinnumál í heiminum.
Lesa meiraMiklu skiptir að stjórnendur fyrirtækja sýni í verki skilning á því að hagsmunir starfsmanna eru hagsmunir fyrirtækisins sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, þegar hún flutti ávarp við útskrift Stóriðjuskóla ÍSAL.
Lesa meiraHinn 19. september 2008 verður haldin ráðstefna um fjölbreytileika í stjórnun fyrirtækja í Salnum í Kópavogi. Með þessari ráðstefnu lýkur verkefninu um jafnréttiskennitöluna.
Lesa meiraÍ dag var dreift á Alþingi frumvarpi félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum.
Lesa meira