Fréttir

Stórátak í uppbyggingu fjölbreyttra tækifæra fyrir ungt fólk án atvinnu - 17/12/2009

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að verja 1,3 milljörðum króna árið 2010 í stórátak til að skapa fjölbreytt tækifæri fyrir fólk án atvinnu til starfa, menntunar eða annars konar virkni.

Lesa meira
 

Velferðarvaktin ályktar um aðgerðir fyrir ungt fólk án atvinnu - 3/12/2009

Velferðarvaktin hefur afhent félags- og tryggingamálaráðherra ályktun þar sem þeim eindregnu tilmælum er beint til stjórnvalda að grípa til aðgerða og tryggja úrræði fyrir ungt fólk í atvinnuleit. Lesa meira
 

Tillögur um úrræði fyrir ungt fólk án atvinnu - 25/11/2009

Atvinnuleysi er hlutfallslega mest meðal fólks undir þrítugu og nærrri 80% atvinnulauss fólks á þessum aldri er aðeins með grunnskólapróf. Miklu varðar að styðja ungt atvinnulaust fólk með litla menntun til náms eða annarrar virkni að mati vinnuhóps sem nú hefur skilað tillögum um úrbætur.

Lesa meira
 

Atvinnutækifæri framtíðarinnar - 11/11/2009

Vaxandi atvinnuleysi ungs fólks er vandamál sem bregðast þarf við með langtímahagsmuni að leiðarljósi. Tryggja þarf fólki menntun sem fellur að þörfum vinnumarkaðarins og skapar atvinnutækifæri til framtíðar. Þetta var megináhersla norrænna vinnumálaráðherra sem funduðu í Reykjavík í dag. Lesa meira
 

Fundur norrænna vinnumálaráðherra - 10/11/2009

Árlegur fundur norrænna vinnumálaráðherra verður haldinn í Reykjavík á morgun. Á fundinum verður meðal annars rætt um leiðir til að sporna við vaxandi atvinnuleysi meðal ungs fólks vegna fjármálakreppunnar.

Lesa meira
 

Morgunverðarfundur um skuldavanda heimilanna - 9/11/2009

Velferðarvaktin stendur fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 11. nóvember 2009 kl. 8.30-10.00 þar sem fjallað verður um skuldavanda heimilanna og kynnt helstu úrræði fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum.

Lesa meira
 

Ráðstefnur um atvinnumál í víðu samhengi - 6/11/2009

Ný skýrsla um atvinnuástand og þróun atvinnumála í OECD ríkjunum verður kynnt á norrænu ráðstefnunni Virkjum fjölbreyttari mannauð í Reykjavík 9.-10. nóvember. Fjallað verður um atvinnumál í víðu samhengi, áhrif atvinnuleysis og leiðir til að berjast gegn því og afleiðingum þess.

Lesa meira
 

Átak þjóðar gegn atvinnuleysi - 30/10/2009

Ein stofnun getur ekki sinnt þeim þúsundum sem nú eru atvinnulausir. Við þurfum að bregðast við sem þjóð með samhæfðu átaki gegn vandanum sagði félags- og tryggingamálaráðherra þegar hann ávarpaði ársfund Vinnumálastofnunar í dag. Lesa meira
 

30 milljónum úthlutað úr starfsmenntasjóði - 15/10/2009

Félags- og tryggingamálaráðherra kynnti í dag úthlutun 30 milljóna króna úr starfsmenntasjóði til 17 starfsmenntunarverkefna sem tengjast erfiðri stöðu á vinnumarkaði.

Lesa meira
 

Aukinn hvati til náms til að sporna við atvinnuleysi - 9/9/2009

Framfærslugrunnur Lánasjóðs íslenskra námsmanna verður hækkaður um 20% og ýmsar breytingar gerðar á samspili námslána og atvinnuleysisbóta samkvæmt tillögum sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun. Markmiðið er að hvetja fólk til náms sem annars væri á atvinnuleysisbótum. Lesa meira
 

Samstarf um sköpun nýrra atvinnutækifæra - 18/8/2009

Vinnumálastofnun og Nýsköpunarmiðstöð Íslands hafa samið við 60 fyrirtæki um tæplega 140 störf fyrir fólk í atvinnuleit sem er tryggt innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Vinnumálastofnun og Nýsköpunarmiðstöðin vinna saman að því að fjölga vinnumarkaðsúrræðum og hefur samstarfið skilað góðum árangri. Lesa meira
 

Skipulegt átak hafið gegn svikum á vinnumarkaði - 3/7/2009

Félags- og tryggingamálaráðherra og fjármálaráðherra hafa ákveðið að auka verulega samstarf Ríkisskattstjóra og Vinnumálastofnunar til þess að sporna gegn svikum á atvinnuleysisbótum og svokallaðri svartri vinnu sem ætla má að fram fari í einhverjum mæli sem stendur. Lesa meira
 

Upphaf endurskipulagningar á stofnunum ráðuneytisins - 2/7/2009

Kynnt hefur verið stefnumörkun félags- og tryggingamálaráðuneytisins um endurskipulagningu á stofnunum þess. Lesa meira
 
Norrænir ráðherrar á Þingvöllum

Mikilvægt að draga úr atvinnuleysi og styrkja velferðarkerfin - 1/7/2009

Í sameiginlegri yfirlýsingu norrænu félags- og heilbrigðisráðherranna kemur fram að ef Norðurlandaþjóðirnar vilja vera áfram leiðandi á heimsvísu í velferðarmálum verði þau að vera samtaka um að slá skjaldborg um velferðarkerfið og draga úr atvinnuleysi. Lesa meira
 

Atvinnustyrkir til kvenna - 17/4/2009

Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, veitti í dag 25 milljónir króna í styrki til atvinnumála kvenna. Sótt var um styrki til 261 verkefnis og hafa umsóknir aldrei verið fleiri.

Lesa meira
 

Lausum störfum fjölgar - 16/4/2009

Lausum störfum á skrá Vinnumálastofnunar hefur fjölgað talsvert á undanförnum vikum og voru 620 í lok mars. Hægt hefur á aukningu atvinnuleysis að undanförnu. Lesa meira
 

Húsfyllir á námsstefnu um vinnumarkaðsúrræði - 3/4/2009

Mikil aðsókn var á námsstefnu um vinnumarkaðsúrræði sem haldin var í dag á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Námsstefnunni var sjónvarpað á Netinu og er upptaka aðgengileg á vef ráðuneytisins.

Lesa meira
 

Námsstefna um vinnumarkaðsúrræði - 31/3/2009

Námsstefna um tækifæri og úrræði fyrir fólk sem misst hefur atvinnuna verður haldin á Hótel Sögu 3. apríl næstkomandi. Lesa meira
 

Bráðabirgðaákvæði um hlutabætur framlengt - 30/3/2009

Alþingi samþykkti í dag frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar. Lesa meira
 
Frá úthlutun úr starfsmenntasjóði

Úthlutanir úr starfsmenntasjóði - 20/3/2009

Verkefnið „Hannað í málm", sem skapar atvinnugrundvöll næsta hálfa árið fyrir þrjá hópa hönnuða og þrjú málmiðnaðarfyrirtæki, hlaut í dag hæstu úthlutunina úr starfsmenntasjóði ráðuneytisins eða 1,7 milljón króna. Úthlutað var til 35 verkefna að þessu sinni alls um 35 milljónum króna. Lesa meira
 

Félagslegt réttlæti fyrir sanngjarna hnattvæðingu - 16/3/2009

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi skýrslu um 97. Alþjóðavinnumálaþingið í Genf 2008. Meðal efnis í skýrslunni er yfirlýsing þingsins um félagslegt réttlæti fyrir sanngjarna alþjóðavæðingu.

Lesa meira
 

Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar - 12/3/2009

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar á Alþingi. Samkvæmt því verður framlengdur gildistími sem heimilar greiðslu hlutfallslegra atvinnuleysisbóta. Lesa meira
 
Undirritun samkomulags

Atvinnutækifæri í Manitoba - 6/3/2009

Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, og Nancy Allan, ráðherra atvinnu- og inflytjendamála í Manitoba í Kanada, hafa undirritað samkomulag sem skapar tímabundna atvinnumöguleika fyrir Íslendinga.

Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra tekur á móti ráðherra atvinnumála í Manitoba - 4/3/2009

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherra fundaði í dag með Nancy Allan, atvinnu- og innflytjendamálaráðherra Manitoba í Kanada, en ráðherrann er hér stödd í boði Ástu Ragnheiðar. Lesa meira
 

Samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um vinnueftirlit í iðnaði, verslun og landbúnaði - 17/2/2009

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu um að Ísland fullgildi tvær samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar á sviði vinnuverndarmála. Lesa meira
 

Samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um vinnueftirlit í iðnaði, verslun og landbúnaði - 17/2/2009

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu um að Ísland fullgildi tvær samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar á sviði vinnuverndarmála. Lesa meira
 

Heimsókn ráðherra á Vinnumálastofnun við Engjateig - 3/2/2009

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, heimsótti í dag þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar við Engjateig í Reykjavík, ræddi við starfsfólk og kynnti sér þjónustuna sem þar er veitt. Lesa meira
 

Aðgerðir til að efla atvinnuástand - 2/2/2009

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur ýtt úr vör vinnu við fjölbreyttar aðgerðir gegn atvinnuleysi í samræmi við fyrstu tillögur starfshóps þar um. Lesa meira
 

Úrræði gegn atvinnuleysi - 2/2/2009

Vinnumálastofnun hefur birt á heimasíðu sinni helstu reglur, eyðublöð og aðrar upplýsingar um vinnumarkaðsúrræði sem stofnunin annast, svo sem námskeið, starfstengd úrræði, atvinnutengda endurhæfingu og ráðgjöf.

Lesa meira
 

Starfshópur um leiðir til að sporna gegn atvinnuleysi - 12/1/2009

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað starfshóp um vinnumarkaðsaðgerðir með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaganna, fjármálaráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins til að móta tillögur um aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi. Lesa meira
 

Aukin úrræði til að sporna gegn atvinnuleysi - 9/1/2009

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur sett reglugerðir um fjölbreytt vinnumarkaðsúrræði til að stuðla að virkni fólks án atvinnu og auka möguleika þess til að komast út á vinnumarkaðinn á nýjan leik. Lesa meira
 

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica