Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hingað og ekki lengra, hættum að kenna hvert öðru um heldur sameinumst í því að endurreisa samfélagið á traustum grunni, sagði Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra, á ársfundi Alþýðusambands Íslands sem hófst í dag.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra úthlutaði í dag 55 milljónum króna úr starfsmenntasjóði ráðuneytisins. Styrkir voru veittir til 39 þróunar- og nýsköpunarverkefna af ýmsu tagi. Þetta er í síðasta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur lýst sig viljugan til að leggja fram frumvarp um að tíminn sem fólk á rétt til atvinnuleysisbóta verði lengdur tímabundið úr þremur árum í fimm. Þetta kom fram á samráðsfundi hans með aðilum vinnumarkaðarins sem haldinn var í júní síðastliðnum.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðuneytið, Vinnumálastofnun, Samtök iðnaðarins, háskólar og tækni- og hugverkafyrirtæki standa saman að átaki sem tryggir um 150 einstaklingum á atvinnuleysisskrá tækifæri til náms í vetur í tækni- og raungreinum.
Lesa meiraUngmennum yfir 18 ára aldri sem nú eru á atvinnuleysisskrá verður tryggð námsvist í framhaldsskólum. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun tillögu um samstarf menntamálaráðuneytisins og félagsmálaráðuneytisins í þessu skyni.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðuneytið og Vinnumálastofnun kynntu í dag nýtt átak gegn langtímaatvinnuleysi og afleiðingum þess. Markmiðið er að virkja þá sem verið hafa lengi atvinnulausir til þátttöku í fjölbreyttum vinnumarkaðsúrræðum.
Lesa meiraSkýrsla starfshóps á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis, með greinargerð og tillögum um aðgerðir til að sporna við einelti í skólum og á vinnustöðum.
Lesa meira
Viðhald á veðurstöðvum, grisjun þjóðskóga með keðjusög, útvarpsþáttagerð og ástandsskoðun á borholum eru á meðal 856 nýrra starfa sem verða auglýst nú um helgina. Ráðið verður í flest störfin fyrir næstu mánaðamót.
Lesa meira
Atvinnumiðstöð Kópavogs, þróunarverkefni á sviði staðbundinna vinnumarkaðsúrræða fyrir ungt fólk, verður opnuð í Kópavogi í byrjun næsta mánaðar. Samningur um þetta var undirritaður í gær.
Lesa meira
Félags- og tryggingamálaráðherra úthlutaði í dag rúmum 30 milljónum króna í styrki til atvinnumála kvenna. Sótt var um styrki til rúmlega 300 verkefna og hafa umsóknir aldrei verið fleiri.
Lesa meiraStefnt er að því að Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun sameinist um næstu áramót í nýrri og öflugri vinnumarkaðsstofnun. Félags- og tryggingamálaráðherra kynnti áformaða sameiningu á fundi með starfsfólki stofnananna tveggja í morgun.
Lesa meira
Vinnumálastofnun hefur samið við Íþróttasamband Íslands um að stýra sjálfboðaliðastarfi fyrir um 150 unga atvinnuleitendur.
Lesa meira
Opnuð verður Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar þar sem Vinnumálastofnun og bæjarfélagið munu annast svæðisbundna vinnumiðlun, ráðgjöf og aðra þjónustu við unga atvinnuleitendur í samráði við við Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði. Þetta er þróunarverkefni og er stefnt að opnun svæðisbundinna atvinnumiðstöðva í fleiri sveitarfélögum.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Markmiðið er að stuðla að því að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
Lesa meiraSjálfstætt starfandi einstaklingur sem stöðvar rekstur sinn kann að eiga rétt á atvinnuleysisbótum. Atvinnuleysistryggingasjóður gerir ekki kröfu um að viðkomandi hafi lokað virðisaukaskattsnúmeri sínu heldur nægir að hann tilkynni til launagreiðendaskrá ríkisskattstjóra að reksturinn hafi verið stöðvaður.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra heimsótti þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar við Engjateig í morgun, ræddi við starfsfólk og atvinnuleitendur og kynnti sér námskeið og úrræði fyrir fólk í atvinnuleit. Hann heimsótti einnig miðstöð átaksins Ungt fólk til athafna, en þangað koma daglega um 80 ungmenni og fá leiðsögn og ráðgjöf.
Lesa meiraVinnumálastofnun hefur samið við samtök símenntunarmiðstöðva um fjölbreytt menntunarúrræði fyrir allt að 700 ungmenni. Áætlað er að um 300 milljónum króna verði varið til verkefnisins.
Lesa meiraVinnumálastofnun og Rauði kross Íslands hafa gert með sér samning sem tryggir allt að 180 sjálfboðastörf fyrir unga atvinnuleitendur á þessu ári. Þetta er tæpur helmingur þeirra sjálfboðaliðastarfa sem stofna á til samkvæmt átaki félags- og tryggingamálaráðuneytis og Vinnumálastofnunar: Ungt fólk til athafna.
Lesa meiraUnnið er að þróun nýrra námstækifæra á framhaldsskólastigi fyrir ungt fólk án atvinnu samkvæmt samkomulagi sem ráðuneyti félagsmála og menntamála hafa gert með sér. Þess er vænst að um 200 ungmenni geti nýtt sér slík námstilboð á vorönn.
Lesa meiraAuglýst er eftir styrkjum til atvinnumála kvenna sem félags- og tryggingamálaráðherra veitir ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar.
Lesa meiraKynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15–18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.
Lesa meira