Skráð atvinnuleysi í apríl var 6,5% á móti 8,1% atvinnuleysi á sama tíma í fyrra samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar sem spáir því að í maí lækki það niður fyrir 6%. Velferðarráðherra segir að mun minna atvinnuleysi hér á landi og meiri atvinnuþátttaka en gerist hjá öðrum Evrópuþjóðum skapi Íslendingum mikilvægt forskot á leið út úr kreppunni.
Lesa meiraVelferðarráðherra hefur mælt fyrir á Alþingi frumvarpi til laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að almennt eigi allir einstaklingar rétt til atvinnutengdrar starfsendurhæfingar, hvort sem þeir eru á vinnumarkaði eða standa utan hans, að því gefnu að þeir uppfylli skilyrði frumvarpsins að öðru leyti.
Lesa meiraVelferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun auglýsa 500 sumarstörf fyrir námsmenn laus til umsóknar í átaksverkefni ráðuneyta og stofnana þeirra. Sveitarfélög bjóða einnig sumarstörf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur á grundvelli verkefnisins og eru störf á þeirra vegum um 400.
Lesa meiraVelferðarráðherra ávarpaði ársfund VIRK-Starfsendurhæfingarsjóðs og ræddi þar meðal annars um frumvarp til laga um starfsendurhæfingu sem nú liggur fyrir Alþingi. Ráðherra sagði til mikils að vinna að forða sem flestum frá örorku og stuðla að virkni fólks eins og kostur er á öllum æviskeiðum.
Lesa meiraRíkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í dag að gera aðgerðaráætlun í málefnum ungs fólks að tillögu Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra og Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Markmiðið er að setja fram skýra framtíðarsýn um tækifæri fyrir ungt fólk í samfélaginu þar sem byggt er á jafnrétti og jöfnun tækifærum.
Lesa meiraÞegar hafa orðið til um 1.000 starfstækifæri fyrir atvinnuleitendur á grundvelli átaksverkefnisins Vinnandi vegur. Með samvinnu atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins er stefnt að því að ráða um 1.500 manns af atvinnuleysisskrá í ný starfstengd vinnumarkaðsúrræði um allt land. Þetta kemur fram í grein velferðarráðherra um vinnumarkaðsúrræði sem birtist í Fréttablaðinu um helgina.
Lesa meiraVelferðaráðuneytið og Vinnumálastofnun standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga, fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. Þetta er í þriðja sinn sem efnt er til átaks af þessu tagi.
Lesa meiraAtvinnutengd vinnumarkaðsúrræði reynast stórum hópi fólks greið leið inn á vinnumarkaðinn. Á ársgrundvelli eru um 63% atvinnuleitenda sem taka þátt í slíkum úrræðum farin af atvinnuleysisskrá þremur mánuðum eftir að þátttöku lýkur. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein velferðarráðherra um vinnumarkaðsúrræði í Fréttablaðinu í dag.
Lesa meiraSamstarfssamningur um atvinnutorg fyrir ungt fólk í Kópavogi var undirritaður í dag en markmið atvinnutorga er að auka virkni ungs fólks á aldrinum 16 – 25 ára sem hvorki er í vinnu né skóla. Þetta er fjórða atvinnutorgið sem sett er á fót í þessu skyni. Hin eru í Reykjavík, Reykjanesbæ og Hafnarfirði.
Lesa meira
Ungu fólki sem hvorki er í námi né vinnu gefst kostur á einstaklingsmiðaðri atvinnutengdri ráðgjöf og stuðningi til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði hjá nýju atvinnutorgi í Hafnarfirði. Samstarfssamningur um verkefnið var undirritaður í dag.
Lesa meira
Stefnt er að því að ráða til starfa allt að 1.500 manns af atvinnuleysisskrá í tengslum við sameiginlegt átak atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins gegn langtímaatvinnuleysi. Vinnumálastofnun stýrir átakinu sem beinist einkum að fólki sem verið hefur án atvinnu í eitt ár eða lengur.
Lesa meira
Atvinnutorg fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16-25 ára voru opnuð í Reykjavík og Reykjanesbæ í dag. Verkefnið markar tímamót þar sem boðin verða úrræði fyrir ungt fólk án tillits til réttinda þess innan atvinnuleysistryggingakerfisins.
Lesa meira
Ráðist verður í tilraunaverkefni um vinnumiðlun í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnar vegna kjarasamninga síðastliðið vor. Verkefnið er skipulagt í samráði velferðarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins. Samkomulag um verkefnið var undirritað í dag.
Lesa meira