Sambýli fyrir fötluð ungmenni, að Barðastöðum 35 í Reykjavík var opnað 30. júlí 2002, með ávarpi Páls Péturssonar, félagsmálaráðherra.
Alls breyttust búsetuhagir 24 einstaklinga með opnun sambýlis við Hólmasund 2 í Reykjavík en það var formlega tekið í notkun 1. nóvember 2002.
Sambýlið við Jöklasel 2 í Reykjavík var vígt 21. október 2003. Húsið er á einni hæð líkt og raðhús og þar eru sex einstaklingsíbúðir auk sameiginlegrar aðstöðu. Við undirbúning verkefnisins var tekið mið af þeim þörfum sem fatlaðir hafa til góðrar þjónustu og lögð var mikil áhersla á kröfur til gæða umhverfis til að stuðla að vellíðan og þroska íbúanna.
Í ávarpi félagsmálaráðherra þann 13. september 2002, við opnun sambýlisins að Sólheimum 21b, kom m.a. fram að stórt skref hafi verið stigið átt að minnkun biðlista fatlaðra eftir búsetu.