Á opinberum vettvangi

15.10.2003

Félagsmálaráðherra heimsækir virkjunarsvæðið við Kárahnjúka

Félagsmálaráðherra heimsækir virkjunarsvæðið við Kárahnjúka
Heimsókn á Austurland
Árni Magnússon, félagsmálaráðherra og Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar ræða við starfsmenn Impregilo.

Árni Magnússon félagsmálaráðherra skoðaði vinnusvæði og aðbúnað starfsmanna við Kárahnjúka í heimsókn sinni þangað þann 11. október sl. Í för með ráðherra voru m.a. Oddur Friðriksson trúnaðarmaður verkalýðshreyfingarinnar, Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlitsins og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar.

Félagsmálaráðherra hitti fulltrúa Landsvirkjunar að máli sem kynntu honum framkvæmdirnar á staðnum. Árni Magnússon hitti einnig fulltrúa Impregilo sem gerðu ráðherra grein fyrir þeirri uppbyggingu sem væri í gangi og sýndu honum vinnubúðir og aðstöðu starfsmanna. Auk þess að hitta fulltrúa Landsvirkjunar og Impregilo ræddi félagsmálaráðherra við innlenda og erlenda starfsmenn á svæðinu.

Fleiri myndir:



Senda grein

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: