Árni Magnússon
Árni Magnússon

Árni Magnússon

Félagsmálaráðherra 23. maí 2003 - 7. mars 2006

Árni er fæddur í Reykjavík 4. júní 1965 en hann var skipaður í embætti félagsmálaráðherra 23. maí 2003.

Foreldrar: Magnús Bjarnfreðsson (f. 9. febrúar 1934) fjölmiðlamaður og Guðrún Árnadóttir (f. 15. maí 1937) bókavörður.

Fjölskylda: Kvæntur 28. júní 1997 Eddu B. Hákonardóttur verslunarmanni (f. 25. júní 1960). Börn þeirra eru Sara Dögg f. 31. mars 1994 og Árni Páll f. 31. ágúst 1996. Dóttir Árna og Þuríðar Guðrúnar Aradóttur er Guðrún Magnea f. 11. júní 1983. Börn Eddu af fyrra hjónabandi Björgvin f. 2. júní 1981 og Hans Þór f. 6. apríl 1983.

Menntun: Samvinnuskólapróf frá Bifröst 1983, ýmis námskeið í rekstrarfræði, stjórnun og stjórnmálafræði frá HÍ og HA.

Starfsferill: Ýmis skrifstofustörf 1983-1987, frétta-, blaða- og dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi, á blöðum og tímaritum 1987-1994. Kosningastjóri Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi fyrir alþingiskosningar 1995, aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1995-1999, aðstoðarmaður utanríkisráðherra 1999-2001, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins 2001-2003.

Ýmis nefnda- og stjórnarstörf: Í stjórn Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytis og Landsvirkjunar 1995-1999, formaður stjórnar Átaks til atvinnusköpunar 1995-1999, formaður stjórnar orkuleitarátaks 1997-1999, varamaður í stjórn Norræna fjárfestingarbankans 1995-2000, formaður nefndar um eflingu kvikmyndagerðar 1996-1999 og nefndar um eflingu tónlistariðnaðar, formaður stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar 1999-2003.

Pólitískur ferill: Formaður stjórnar Kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suðurlandi 1998-2001, bæjarfulltrúi í Hveragerði 1998-2003, í Héraðsnefnd Árnesinga 1998-2003, formaður stjórnar Heilsugæslunnar í Hveragerði 1998-2003, fulltrúi á ársfundum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 1999 og 2000, formaður bæjarráðs Hveragerðis 2002-2003, formaður stjórnar Hitaveitu Hveragerðis 2002-2003, formaður stjórnar Listasafns Árnesinga 2002-2003, varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 2002-2003, formaður EES nefndar Sambandsins 2002-2003. Alþingismaður og félagsmálaráðherra frá 2003-2006.


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: