Páll Pétursson
Félagsmálaráðherra 23. apríl 1995 - 23. maí 2003
Páll er fæddur 17. mars 1937 á Höllustöðum í Blöndudal. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1957 og hóf þá búskap á Höllustöðum.
Páll var alþingismaður Framsóknarflokksins fyrir Norðurland vestra 1974 til 2003 og var formaður þingflokks Framsóknarflokksins á árunum 1980 til 1994.
Páll hefur starfað að ýmsum félagsmálum og gengt fjölda trúnaðarstarfa. Hann var formaður Félags ungra framsóknarmanna í Austur-Húnavatnssýslu 1963 til 1969, sat í hreppsnefnd Svínavatnshrepps frá 1970 til 1974, formaður Veiðifélags Auðkúluheiðar 1972 til 1977, fulltrúi Austur-Húnvetninga á fundum Stéttarsambands bænda 1973–1977, formaður Hrossaræktarsambands Íslands 1974 til 1980, í Norðurlandaráði 1989 til 1999, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs 1983 til 1992, kjörinn í samstarfsnefnd með Færeyingum og Grænlendingum 1981 um sameiginleg hagsmunamál, í Rannsóknarráði 1978 til 1980, formaður Vestnorræna þingmannaráðsins 1985 til 1987, í stjórn Landsvirkjunar 1987 til 1995, kosinn í Evrópustefnunefnd 1988 og 1991 til 1995 var hann í þingmannanefnd EFTA/EES.
