Hoppa yfir valmynd
20. mars 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Skýrsla um störf Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir Alþingi - framsöguræða ráðherra

Forseti,

Ég mun nú gera stuttlega grein fyrir skýrslu sem ég hef látið taka saman um þátttöku okkar í samstarfi norrænu ríkisstjórnanna á árinu 2014, eins og það fer fram á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Skýrslan var eins og mörg undanfarin ár unnin í góðu samstarfi og samráði við ráðuneytin og undirstofnanir þeirra þegar við átti. Að þessu sinni ákvað ég að breyta uppsetningu skýrslunnar með það í huga að gera hana læsilegri og vonandi áhugaverðari.

*****

Síðastliðið ár var sérstakt í norrænu samstarfi vegna þess að Ísland fór með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Formennskuhlutverkið er stórt í sniðum og ábyrgðarmikið, því fylgir aukið álag sem bætist við dagleg störf allra þeirra starfsmanna stjórnarráðsins sem sitja í norrænum embættismannanefndum og þeirra ráðherra ríkisstjórnarinnar sem setjast í forsæti sinna fagráðherranefnda. Ég tel að okkur hafi tekist að leiða samstarfið með sóma, við gátum sett mark okkar á það með því að koma að ýmsum áherslum sem við teljum brýnar, ekki bara fyrir okkur Íslendinga heldur fyrir alla Norðurlandabúa.

*****

Kjölfestan í formennsku okkar samanstóð af formennskuverkefnunum NordBio/Biophilia, Norræna spilunarlistanum og Norrænu velferðarvaktinni. Enda þótt verkefnin teljist hluti af formennskuáætlun okkar eru þau í alla staði norræn og voru þau samþykkt sem slík af norrænu samstarfsráðherrunum og verða áfram hluti af áherslumálum Norrænu ráðherranefndarinnar að minnsta kosti næstu tvö árin. Mikil vinna var lögð í verkefnin á árinu, en öll standast þau þær áætlanir sem lagt var upp með í upphafi formennskuárs.

Stærst þessara verkefna er NordBio/Biophilia verkefnið, en til þess var varið 10 milljónum danskra króna (rúmlega 200 millj. ISK) á árinu.  Biophilia, sem er stórt verkefni innan vébanda NordBio, er á ábyrgð norrænu menntamálaráðherranna. Þetta er kennslufræðitilraun sem byggir á samstarfi vísinda og lista. Viðfangsefni NordBio-hlutans eru afar fjölbreytt og má þar meðal annars finna nýsköpun, umhverfismál, byggðaþróun, orkumál, landbúnað, skógrækt, fiskveiðar og matvælaframleiðslu. 

Í upphafi varð ljóst að verkefnið myndi krefjast aðkomu margra samstarfssviða og fór fram mikil undirbúnings- og mótunarvinna vegna þessa. Hér á landi eru það einkum þrjú ráðuneyti sem bera ábyrgð á verkefninu (UAR, ANR og MMR) auk þess sem það fellur undir fimm ráðherranefndir innan Norrænu ráðherranefndarinnar. Öflugar norrænar stofnanir leggja sitt af mörkum til verkefnisins auk þess sem rannsókna- og nýsköpunarstofnanir í löndunum taka þátt. Segja má að við Íslendingar höfum brotið blað í samstarfinu með þessu verkefni en aldrei fyrr hefur verið stofnað til norræns verkefnis sem krefst samvinnu svo margra ólíkra samstarfssviða. Verkefnið er til þriggja ára og eru allar líkur til þess að samanlagt 600 milljónum íslenskra króna verði varið til þess.

*****

Norræni spilunarlistinn er menningarverkefni sem er á ábyrgð norrænu menningarráðherranna. Markmið þess er að kynna norræna popptónlist, bæði innan Norðurlanda og utan. Í upphafi formennskuárs var verkefnið komið það vel á veg að hægt var að kynna það strax í upphafi janúar. Verkefnið nýtir netið til þess að koma norrænni tónlist á framfæri og er miðstöð þess á sérstakri heimasíðu þar sem kynningin fer fram. Öll helstu markmið verkefnisins náðust á árinu hvað varðar sýnileika á samfélagsmiðlum og heimsóknir á heimasíðu þess. Vonast er til að hægt verði að beina sjónum að fleiri tónlistartegundum árin 2015 og 2016. Norrænt fé til verkefnisins var 2 milljónir danskra króna (ca. 40 millj. ísl. kr.) – sömu upphæðir verða til ráðstöfunar í ár og að öllu óbreyttu, einnig á næsta ári. 

*****

Norræna velferðarvaktin byggir á íslensku velferðarvaktinni sem sett var á laggir hér á landi í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Velferðarvaktin var á sínum tíma kynnt fyrir norrænum félagsmálaráðherrum og upp úr því vaknaði hugmyndin um að rannsaka áhrif fjármálaþrenginga og tengdra afleiðinga á norrænu velferðarkerfin til þess að stuðla að upplýstri stefnumótun um velferðarmál á Norðurlöndum.  Norrænu félags- og heilbrigðisráðherrarnir bera ábyrgð á verkefninu en hér heima er það velferðarráðuneytið sem sér um sjálfa framkvæmdina og tryggir norrænu tengingarnar. Líkt og með önnur formennskuverkefni einkenndist árið af miklum undirbúningi og myndun norrænna tenginga, verkefnið gengur samkvæmt áætlun og vænta má fyrstu niðurstaðna síðar á árinu. Alls runnu 3 milljónir danskra króna (ca. 60 milljónum ísl. króna) til verkefnisins, sama upphæð hefur verið ákveðin í ár, og gert ráð fyrir að sú upphæð haldist 2016.

*****

Eins og fram kemur í formála skýrslunnar er norrænt samstarf mjög yfirgripsmikið og ógjörningur að gera því öllu skil á einum stað. Til þess höfum við heimasíður Norrænu ráðherranefndarinnar og norrænu stofnananna. Ég ætla þess vegna að stikla á stóru og nefna nokkra norræna viðburði sem haldnir voru hér á landi og kom í hlut okkar Íslendinga að skipuleggja og málefni sem voru í deilglunni á árinu.

*****

Það hefur löngum einkennt norræna ríkisstjórnarsamstarfið að spurt er með reglulegu millibili hvað löndin vilji fá út úr því og hvort enn sé hagkvæmt að leita sameiginlegra lausna á ýmsum sviðum í stað þess að hvert landi leysi sjálft sín mál. Í þeim anda hófst á formennskuári Svía umræða í hópi samstarfsráðherranna um það hver skyldi vera stefna eða framtíðarsýn norræns samstarfs næstu árin. Þessari umræðu lauk í byrjun formennskuárs okkar með því að samstarfsráðherrarnir komu sér saman um yfirlýsingu sem á að vera leiðarljósið í samstarfinu næstu árin. Í stuttu máli vilja samstarfsráðherrarnir að samstarfið í framtíðinni miði að því að Norðurlönd verði án landamæra, að efla þau sem nýskapandi svæði, að gera þau sýnileg með því að standa saman að því að vekja athygli umheimsins á Norðurlöndum sem einni heild og að þau stilli betur saman strengi sína í alþjóðamálum. Yfirlýsinguna í heild sinni er meðal annars að finna á heimasíðu ráðherranefndarinnar.

*****

Í samræmi við fyrrgreinda viljayfirlýsingu um nauðsyn þess að vekja athygli umheimsins á Norðurlöndum sem einni heild hófst á árinu vinna við að móta sameiginlega áætlun um að kynna og skapa Norðurlöndum stöðu á alþjóðavettvangi. Þessi vinna tók mið af niðurstöðum forkönnunar sem ráðherranefndin lét gera í kjölfar Nordic Cool menningarhátíðarinnar sem haldin var í Kennedy Center í febrúar 2013. Útvaldir aðilar í löndunum sem láta sig þessi mál varða voru spurðir hvort þörf væri á samnorrænni áætlun fyrir markaðssetningu Norðurlanda sem svæðis og hverju hún myndi skila. Niðurstöðurnar voru mjög afgerandi á þá lund að slíkt væri mjög æskilegt og að samlegðaráhrifin væru augljós.

Ákveðið var að ráðast í verkefnið snemma á árinu og var í því skyni skipaður norrænn sérfræðingahópur sem hafði veg og vanda af því að undirbúa áætlunina í samstarfi við upplýsingadeild ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Áætlun um að kynna og skapa Norðurlöndum stöðu á alþjóðavettvangi 2015–2018, var síðan lögð fyrir fund samstarfsráðherranna í lok október þar sem hún var samþykkt. Áætlunin kemur til framkvæmda frá áramótum 2015 og hefur nú verið ráðinn verkefnisstjóri til fjögurra ára til þess að hafa umsjón með framkvæmd hennar. Gert er ráð fyrir að allir sem hyggja á sameiginlega norræna kynningu og markaðssetningu geti nýtt sér áætlunina.

*****

Starf ráðherranefndarinnar við að ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum tók breytingum með því að Landamærahindranaráðið tók til starfa 1. janúar. Nýmæli eru að löndin munu nú skiptast á um að leiða starfið samkvæmt formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Það kom því í okkar hlut að vera í forsæti þetta fyrsta starfsár sem einkenndist af mikilli vinnu við að skipuleggja störf ráðsins þannig að þau gætu skilað árangri. Ljóst er að ein aðalforsendan fyrir lausn stjórnsýsluhindrana er áhugi, vilji og geta þingmanna, ráðherra og embættismanna, til að breyta löggjöf eða breyta framkvæmd reglna, eftir því sem við á í hverri hindrun fyrir sig.

*****

Á árinu var þess minnst að 60 ár eru liðin frá því að Norðurlönd undirrituðu samninginn um sameiginlegan vinnumarkað. Efnt var til ráðstefnu í Hörpunni þar sem fjallað var um norræna vinnumarkaðinn frá ýmsum hliðum. Við sama tækifæri voru kynntar helstu niðurstöður viðamikillar rannsóknar á norræna velferðarkerfinu og þeim áskorunum sem það stendur andspænis á næstu áratugum, þ.e. stafrænu byltingunni sem hefur í för með sér fækkun starfa, æ meiri hnattvæðingu sem leiðir m.a. til flutnings fyrirtækja og atvinnutækifæra til svæða þar sem skattaumhverfi er hagstæðara og loks hækkandi meðalaldri Norðurlandabúa og þar með ört stækkandi hópi aldraðra sem þarf að reiða sig á velferðarkerfið og þjónustu þess.

Fleiri tímamót í norrænu samstarfi báru upp á formennskuár Íslands – haldin var ráðstefna í tilefni af 40 ára jafnréttissamstarfi og Svanurinn, norræna umhverfismerkið, fagnaði 25 ára samstarfsafmæli.

*****

Á árinu var lögð mikil vinna í að endurskoða og betrumbæta allt innra starf Norrænu ráðherranefndarinnar til þess að einfalda daglega starfsemi og gera hana skilvirkari. Forstjóri skrifstofunnar í Kaupmannahöfn lagði fyrir okkur samstarfsráðherrana tillögur sína til úrbóta á sumarfundi okkar og voru þær flestar samþykktar. Ég vil sérstaklega nefna bættar starfsaðferðir og meira gegnsæi varðandi undirbúning norrænu fjárlaganna, skýrari framsetningu þeirra í fjárlagabókinni og betra eftirlit með rekstri norrænna verkefna og aukin krafa um árangursstjórnun. Allt eru þetta atriði sem Norðurlandaráð hefur óskað eftir undanfarin ár að verði færð til betri vegar.

*****

Málefni norrænu skrifstofunnar í Pétursborg voru því miður mikið í kastljósinu á árinu en þegar árið 2012 urðu menn uggandi um að viðvera Norrænu ráðherranefndarinnar í Rússlandi myndi eiga á brattann að sækja á næstkomandi misserum vegna hertrar löggjafar þar í landi um starfsemi frjálsra félagasamtaka. Skrifstofur ráðherranefndarinnar í Kaliningrad og í Pétursborg eru skilgreindar sem frjáls félagasamtök samkvæmt rússneskum lögum þrátt fyrir andmæli ráðherranefndarinnar. Þegar á vormánuðum 2013 fékk skrifstofan í Kaliningrad eftirlitsheimsókn saksóknaraembættisins.  Til tíðinda dró enn á ný á miðju sumri 2014 þegar saksóknaraembættið í Pétursborg mætti í fyrirvaralausa heimsókn á skrifstofu ráðherranefndarinnar og krafðist þess að fá aðgang að tölvum og gögnum þar sem starfsemin væri nú komin undir smásjá yfirvalda. Í kjölfarið fyrirskipaði saksóknari í janúar 2015 að skrifstofan skyldi skráð sem „erlendur erindreki“ (e. foreign agent) og var hún sett á nokkurs konar „svartan“ lista sem birtist á heimasíðu rússneska dómsmálaráðuneytisins yfir fleiri félagasamtök í Rússlandi sem munu eftirleiðis sæta sérstöku eftirliti stjórnvalda.

Þessi nýja staða gerir skrifstofunni mjög erfitt fyrir að sinna verkefnum sínum. Starfsemin er nú í algerri biðstöðu, öllum verkefnum hefur verið frestað og heimasíðu skrifstofunnar hefur verið lokað. Norðurlönd telja þetta mjög miður, enda hafði Norræna ráðherranefndin átt gott samstarf við rússnesk yfirvöld og stofnanir síðan skrifstofurnar voru settar á laggirnar fyrir um 20 árum. Sendiherrar Norðurlandanna í Moskvu hafa á fundum í rússneska utanríkisráðuneytinu komið á framfæri þungum áhyggjum af eftirlitsheimsóknunum og þeirri ákvörðun stjórnvalda að breyta stöðu skrifstofunnar í Pétursborg; var við sama tækifæri hvatt til þess að Rússar endurskoði afstöðu sína. Viðmót utanríkisráðuneytisins hefur fram til þessa verið þannig að lítil von er til þess að svo geti orðið í nánustu framtíð.  

Staða skrifstofunnar í Pétursborg og allt rekstrarumhverfi er afar erfitt og er nú rætt í hópi samstarfsráðherranna, og í nánu samráði við norrænu utanríkisráðuneytin, hvert skuli stefna í málefnum hennar. Ljóst er að miklar breytingar munu eiga sér stað varðandi viðveru ráðherranefndarinnar í Rússlandi á næstu misserum.

*****

Forseti,

Ég hef nú stiklað á stóru yfir nokkur valin efnisatriði þessarar skýrslu; margt varð að sjálfsögðu útundan enda tími minn naumt skammtaður. Ég vænti þess hins vegar að þingmenn vilji hér á eftir ræða efni skýrslunnar eða um norrænt samstarf almennt og þýðingu þess fyrir okkur Íslendinga. Mun þá gefast kostur á að ræða ýmis norræn málefni sem ekki hefur enn verið hreyft við í þessari umræðu.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum