Hoppa yfir valmynd
15. júní 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Margt til lista lagt - afmæliskveðja heilbrigðisráðherra í tilefni 25 ára afmælis Landssambands eldri borgara

Afmæliskveðja frá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra
Listin að lifa, afmælisrit vorið 2014

Landssamband eldri borgara verður 25 ára þann merka dag 19. júní og er því rétt komið af unglingsaldri. Ég óska sambandinu og félögum þess innilega til hamingju með áfangann og afmælið.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Landssamband eldri borgara náð að sanna sig sem öflugt félag sem hlustað er á. Landssambandið á fulltrúa í mikilvægum lögbundnum nefndum. Fulltrúi sambandsins situr í stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra og einnig í samstarfsnefnd um málefni aldraðra sem meðal annars skal vera ráðherra og ríkisstjórn til ráðuneytis um málefni sem varða aldraða. Landssamband eldri borgara er jafnan kallað til í verkefnanefndir þar sem málefni aldraðra eru til umfjöllunar, ályktanir sambandsins vekja jafnan athygli og fjölmiðlar eru fljótir að leita álits hjá forsvarsmönnum þess ef opinber umræða býður upp á slíkt. Í ljósi þessa finnst mér réttmætt að segja að Landssambandi eldri borgara er margt til lista lagt.

Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að öflug félagasamtök sem starfa af ábyrgð og fagmennsku geta áorkað miklu og unnið gagn, ekki aðeins félögum sínum heldur samfélaginu öllu. Þannig lít ég á Landssamband eldri borgara og fagna því tilveru félagsins og styrknum sem það býr yfir. Auðvitað er ég ekki alltaf sammála öllum áherslum þess og stundum ganga forsvarsmenn þess hart fram og eru óvægnir í gagnrýni sinni á stjórnvöld. Þetta er hins vegar eðlilegt. Það þarf sterka rödd svo heyrist og Landssamband eldri borgara hefur þá rödd, lætur í sér heyra og vinnur ötullega að bættum hag aldraðra.

Ég ítreka hamingjuóskir mínar til Landssambands eldri borgara og allra þeirra sem að félaginu standa og vonast eftir farsælu samstarfi framundan við þetta öfluga félag.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum