Hoppa yfir valmynd
10. september 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Málþing á Alþjóðadegi forvarna gegn sjálfsvígum 10. september 2014

Málþing á Alþjóðadegi forvarna gegn sjálfsvígum
Ávarp Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra

Komiði sæl öll.

Ég vil þakka ykkur öllum sem hér eruð, jafnt einstaklingum sem fulltrúum stofnana eða félagasamtaka, fyrir að láta ykkur varða þetta alvarlega málefni – fyrir að vera hér og hlusta og fyrir að taka þátt í mikilvægri umræðu. Það er líka gott að vita til þess að kyrrðarstundir verða haldnar í kvöld, í dómkirkjunni í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum, til að heiðra minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Við megum ekki láta þá staðreynd að fólk svipti sig lífi liggja í þagnargildi. Við eigum að ræða þessi mál, við eigum að minnast þeirra sem þannig hafa horfið frá okkur, við eigum sem samfélag að muna eftir ábyrgð okkar, gagnvart þeim sem svona látast, gagnvart aðstandendum þeirra og gagnvart þeim sem kunna að vera í hættu á að taka eigið líf. Það er hægt að hjálpa – og það er hægt að sporna við sjálfsvígum með forvörnum.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin birti fyrir nokkrum dögum fyrstu skýrslu sína um forvarnir gegn sjálfsvígum ásamt tölulegum upplýsingum um tíðni sjálfsvíga meðal einstakra þjóða. Skýrslan er ákall og hvatning til þjóða heims um að gefa sjálfsvígum og sjálfsvígstilraunum meiri gaum í umfjöllun um lýðheilsumál, að auka vægi forvarna og síðast en ekki síst er hvatt til þess að heilbrigðisyfirvöld marki forvarnarstefnu – eða styrki slíka stefnu sé hún fyrir hendi, með alhliða og þverfaglegri nálgun.

Skýrsla Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar kemur á góðum tíma fyrir okkur hér á Íslandi því snemma í sumar hrinti ég af stað vinnu við gerð geðheilbrigðisstefnu þar sem sjónum verður m.a. beint að sjálfsvígsforvörnum.

Þessi skýrsla mun gagnast vel í því starfi og öðrum verkefnum sem verið er að vinna að eins og tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisáætlun til ársins 2020 sem ég mun leggja fram á Alþingi í vetur.

Góðir gestir.

Ég ætla ekki að fara út í faglega umræðu hér um sjálfsvíg og forvarnir gegn þeim. Fyrst og fremst vil ég segja að við eigum að byggja á þeirri reynslu og þekkingu sem er fyrir hendi hjá fagfólki, aðstandendum og félagasamtökum og horfa til annarra þjóða sem eru lengra komnar en við í forvarnarstarfi og stefnumótun í þessum efnum. Áhættuþættir sjálfsvíga og sjálfsvígstilrauna eru ýmsir vel þekktir og þá vitneskju eigum við að nýta í forvarnarvinnunni.

Í lok máls míns færi ég þakkir mínar þeim sem stóðu að þessu málþingi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum