Markverð skref í heilbrigðismálum
Það er markmið stjórnvalda að íslenskt heilbrigðiskerfi sé samkeppnisfært við nágrannalöndin um tækjakost, aðbúnað sjúklinga og aðstæður starfsmanna. Húsakostur Landspítalans hefur lengi verið óviðunandi. Nú loksins sér fyrir endann á því og það birtist með skýrum hætti í nýsamþykktum fjárlögum. Þetta ár markar upphafið að endurreisn Landspítalans. Um leið hefur tekist að skapa færi fyrir viðsnúning á ýmsum sviðum heilbrigðismála. Við skulum líta á nokkur dæmi.
- Fjárveitingar til Landspítalans hafa verið stórauknar árin 2014 og 2015 og nema nú 49,4 milljörðum króna.
- Fjárveitingar til tækjakaupa á Landspítalanum hafa verið auknar verulega og verða á þessu ári 1.445 milljónir í samræmi við tækjakaupaáætlun.
- Nýr aðgerðarþjarki til skurðlækninga verður tekinn í notkun á Landspítalanum í febrúar.
- 945 milljónum króna verður varið á árinu í uppbyggingu nýs Landspítala.
- Með markvissum aðgerðum og auknum fjárveitingum hefur tekist að endurreisa lyflækningasvið Landspítalans.
- Framhaldsmenntun unglækna á lyflækningasviði hefur verið sett í forgang sem hefur eflt endurnýjun í faginu.
- Ríkisstjórnin hefur tekið höndum saman með félögum lækna um markvissa uppbyggingu heilbrigðiskerfisins.
- Stóraukinn kraftur hefur verið settur í gerð rafrænnar sjúkraskrár sem samtengd verður fyrir allt heilbrigðiskerfið á landsvísu.
- Gengið hefur verið frá samningi um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu en eldri samningar runnu út í ársbyrjun 2012. Framtíðarstefna um þessa mikilvægu þjónustu hefur verið mótuð.
- Frá 1. janúar eru tannlækningar þriggja ára barna og barna á aldrinum átta til sautján ára greiddar að fullu. Stefnt er að því að tannlækningar allra barna yngri en 18 ára verði greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands.
- Lyfjakostnaður einstaklinga lækkaði um áramót með aukinni greiðsluþátttöku ríkisins og lækkun á virðisaukaskatti.
Hér er fátt eitt tínt til en auk þess má nefna að ríkisstjórnin hyggst vinna að því að auka almenn lífsgæði landsmanna með því að efla starf á sviði forvarna og lýðheilsu. Þannig er ætlunin að draga úr beinum og óbeinum kostnaði fyrir samfélagið allt til framtíðar.