Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2016 Heilbrigðisráðuneytið

Nýr og öflugur tækjabúnaður tekinn í notkun á rannsóknakjarna Landspítala

Ávarp Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra

Sæl öll – og ég býð ykkur góðan dag, því þetta er virkilega góður dagur og einn af mörgum slíkum undanfarið hér á Landspítalanum við Hringbraut.

Eftir mögur ár er Landspítalinn að ná vopnum sínum og vörn hefur verið snúið í sókn. Erfiðar kjaradeilur eru að baki og kominn á vinnufriður þar sem starfsfólkið er vonandi sáttara við sitt en áður. Framlög til Landspítala hafa síðustu þrjú ár verið aukin umtalsvert, verulega hefur verið aukið við fé til tækjakaupa samkvæmt sérstakri tækjakaupaáætlun og síðast en ekki síst er nú markvisst unnið að því að hrinda í framkvæmd áformum um Nýjan Landspítala við Hringbraut. Stutt er síðan ég fékk þann heiður að taka fyrstu skóflustunguna að nýja sjúkrahótelinu sem rísa mun hér á Landspítalalóðinni. Samkvæmt fjárlögum verður ríflega 1.800 milljónum króna varið til uppbyggingar landspítala við Hringbraut á þessu ári, annars vegar vegna sjúkrahótelsins og hins vegar vegna fullnaðarhönnunar á meðferðarkjarna sjúkrahússins.

Önnur skóflustunga sem boðar bjartari tíma fyrir spítalann okkar allra var tekin fyrir skemmstu vegna byggingar húsnæðis fyrir nýjan jáeindaskanna sem Íslensk erfðagreining ákvað af miklum rausnarskap að færa þjóðinni. Þeir sem til þekkja segja að skanninn muni valda byltingu í greiningu og meðferð sjúkdóma, einkum krabbameina, og leiða til markvissari meðferðar og enn fremur fækka óþörfum skurðaðgerðum.

Og nú erum við hér saman komin til að taka formlega í notkun nýja flæðilínu sjúkrahússins sem unnið hefur verið að því að skipuleggja, þróa og setja upp um árabil. Í þessu felst endurnýjun tækjabúnaðar og endurskipulagning á húsnæði Rannsóknarkjarna Landspítalans þar sem markmiðið er að bæta starfsumhverfi starfsfólksins og flæði sýna til rannsókna. Miðað við það sem ég hef kynnt mér varðandi nýju flæðilínuna þá er hér um að ræða flókið verkefni, hvort sem horft er til tækjabúnaðar eða ferla við rannsóknir. Ég ætla öðrum fara út í þá sálma og útskýra í hverju þetta allt saman felst. Kjarni málsins er að nýja flæðilínan með tilheyrandi nýjum tækjabúnaði og aukinni sjálfvirkni leiðir til ávinnings sem mæla má í auknum afköstum, skjótari niðurstöðum úr rannsóknum, bættri smitgát og aukinni hagkvæmni í rekstri. Þessi atriði eru hvert öðru mikilvægara. Þarna fara saman hagsmunir sjúklinga, aukin gæði, betri þjónusta, aukin hagkvæmni og bætt starfsumhverfi þeirra sem vinna við rannsóknirnar sem hér fara fram.

Ég óska okkur öllum innilega til hamingju með áfangann og daginn.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum