Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2016 Heilbrigðisráðuneytið

Einstakt lýðheilsuátak - heilbrigðisráðherra skrifar um átak til að útrýma lifrarbólgu C

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra

Grein eftir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Birtist í Fréttablaðinu 22. janúar 2016

Í dag er einstöku meðferðarátaki við lifrarbólgu C  hleypt af stokkunum. Átakið felur í sér að að unnt verður að veita öllum þeim 800-1000 einstaklingum sem eru sjúkratryggðir á Íslandi og hafa greinst með lifrabólgu C bestu fáanlegu meðferð með nýjum lyfjum. Átak af þessari stærðargráðu, þar sem öllum býðst besta fáanlega meðferð, er fordæmalaus á heimsvísu.

Lifrarbólga C er alvarlegur og í mörgum tilvikum lífshættulegur sjúkdómur þar sem þekktar afleiðingar eru skorpulifur, lifrarkrabbamein og lifrarbilun.

Flestir sem sýkjast af lifrarbólgu fá langvinna sýkingu sem krefst meðferðar. Sú lyfjameðferð sem helst er beitt getur læknað fólk en dugir ekki alltaf. Meðferð tekur marga mánuði og aukaverkanir eru nokkuð algengar og geta reynst sjúklingum erfiðar.

Á síðustu misserum hafa komið fram ný lyf við lifrarbólgu C sem kalla má byltingarkennd þar sem þau lækna á bilinu 95 til 100% sjúklinga sem eru meðhöndlaðir með þeim, auk þess að hafa mun minni aukaverkanir en eldri lyf. Sá hængur er á að þessi lyf eru mjög dýr sem gerir það að verkum að heilbrigðisyfirvöld í þeim löndum þar sem lyfin hafa á annað borð verið innleidd gera það með ströngum skilyrðum þar sem aðeins lítill hluti smitaðra fær slíka meðferð samkvæmt forgangsröðun sem byggist á faglegu mati lækna.

Ísland fær einstakt tækifæri

Með átakinu er stefnt að því að vinna bug á sjúkdómnum hér á landi og stemma stigu við frekari útbreiðslu hans. Forsenda þess að unnt er að ráðast í þetta risavaxna verkefni, er samstarf við lyfjafyrirtækið Gilead Sciences sem í faraldsfræðilegu rannsóknarskyni leggur til lyfið Harvoni fyrir alla þá sjúklinga sem smitaðir eru og þiggja meðferð. Samhliða meðferðarátakinu munu fara fram rannsóknir á árangri þess til lengri og skemmri tíma, m.a. á sjúkdómsbyrði og á langtímakostnað við heilbrigðisþjónustu.

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 6. október sl. að veita árlega, næstu þjrú árin, 150 milljónir króna til átaksins sem varið verður til blóðrannsókna og annarrar þjónustu sem tengist meðferðinni. Jafnframt fól ríkisstjórnin mér að ganga frá samkomulagi íslenskra heilbrigðisyfirvalda og Gilead um verkefnið.  Í dag staðfesti ég þennan samning Landspítala og Gilead.

Ein af mikilvægustu forsendum þess að lýðheilsuátak eins og þetta sé raunhæft og framkvæmanlegt er sú að við erum fámenn eyþjóð auk þess sem við búum við gott heilbrigðiskerfi með trausta innviði.

Langur aðdragandi og vandaður undirbúningur

Undirbúningur að þessu verkefni hefur staðið á vel á annað ár. Hópur lækna á Landspítala hafði forystu um málið í samvinnu við fyrirtækið Gilead en á síðari stigum undirbúningsins komu að verkefninu breiður hópur fagfólks Landspítala, fulltrúar velferðarráðuneytisins, SÁÁ og fleiri aðila. Sóttvarnalæknir hefur átt afar mikilvæga aðkomu að verkefninu, enda fellur verkefnið að 5. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997. Landspítali mun leggja til starfsmenn, aðstöðu og nauðsynlegar greiningarannsóknir en yfirumsjón með verkefninu verður á hendi Sóttvarnalæknis.

Ég vil að lokum lýsa þakklæti mínu í garð allra þeirra fjölmörgu aðila sem hafa um langt skeið lagt nótt við dag til að undirbúa og gera mögulegt þetta einstæða lýðheilsuverkefni. Fjöldi fólks sem glímir við erfiðan sjúkdóm eygir nú von um lækningu og betra líf. Eins og Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnalæknir hefur bent á má með þessu átaki binda vonir við að okkur takist að rjúfa þennan vítahring smits og bægja þessum landlæga og alvarlega sjúkdómi frá til framtíðar.

Það er til mikils að vinna.

Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum