
Varasjóður húsnæðismála var stofnaður með lögum nr. 86/2002 um breytingu á lögum um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum. Breyting laganna byggðist á samkomulagi milli ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 4. apríl 2002.
Með stofnun hans var Varasjóður viðbótarlána lagður niður og verkefni hans flutt til Varasjóðs húsnæðismála. Önnur verkefni hans eru m.a.:
- Að veita rekstrarframlög til sveitarfélaga vegna hallareksturs félagslegra leiguíbúða eða íbúða sem hafa staðið auðar í lengri tíma.
- Að veita framlög til sveitarfélaga vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði.
- Að hafa umsýslu með Tryggingarsjóði vegna byggingargalla.
- Að veita ráðgjöf og leiðbeiningar þeim sveitarfélögum sem vilja breyta um rekstrarform félagslegra leiguíbúða eða hagræða í rekstri þeirra.
- Að sjá um upplýsingavinnslu og úttekt á árangri af verkefnum sjóðsins.
- Nánar um starfsemi sjóðsins
- Samkomulag um rekstrarframlög til Varasjóðs húsnæðismála 2010-2011