Almennt

Efling sveitarstjórnarstigsins

Félagsmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa sett af stað átak til eflingar sveitarstjórnarstigsins.

Vefsíðu þessari er ætlað að vera upplýsingaveita um verkefnið og framgang þess, auk þess að vera samráðsvettvangur við sveitarstjórnarmenn og aðra áhugasama um eflingu sveitarstjórnarstigsins.

Hægt er að senda nefndinni tölvupóst á netfangið sameiningarnefnd@fel.stjr.is.

Bent er á að hægt er að taka þátt í umræðum um verkefnið á sérstökum umræðuvettvangi verkefnisins.

Yfirumsjón með verkefninu er í höndum þriggja manna verkefnisstjórnar sem skipuð er af félagsmálaráðherra. Verkefnisstjórninni er jafnframt falið að leggja fram tillögur til félagsmálaráðherra um hvaða breytingar komi til greina að gera á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga í því augnamiði meðal annars að treysta sveitarstjórnarstigið og efla sjálfsforræði byggðarlaganna.

Tvær nefndir starfa með verkefnisstjórninni. Annars vegar sameiningarnefnd sem vinnur tillögur um breytingar á sveitarfélagaskipan, og hins vegar tekjustofnanefnd sem vinnur tillögur um breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga í samræmi við breytingar á verkaskiptingu hins opinbera.

Verkefnið hófst í október 2003, en gert er ráð fyrir að því ljúki á núverandi kjörtímabili sveitarstjórna.

NEFNDARMENN:

Verkefnisstjórn

  • Hjálmar Árnason, alþingismaður
  • Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingiskona
  • Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi

Tekjustofnanefnd (hefur lokið störfum og skilað tillögum)

  • Guðjón Bragason, skrifstofustjóri
  • Kristján Þ. Júlíusson, bæjarstjóri
  • Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
  • Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
  • Ólafur Hjálmarsson, skrifstofustjóri
  • Svanhvít Jakobsdóttir, skrifstofustjóri

Sameiningarnefnd

  • Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri
  • Elín R. Líndal, bæjarfulltrúi
  • Guðjón Hjörleifsson, alþingismaður
  • Helga Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi
  • Magnús Stefánsson, alþingismaður
  • Einar Már Sigurðarson, alþingismaður
  • Smári Geirsson, bæjarfulltrúi
SÖGULEGT YFIRLIT ELDRA SAMEININGARÁTAKS


Með skipan nefndar um skiptingu landsins í sveitarfélög árið 1991 var hafinn undirbúningur að átaki í sameiningarmálum sveitarfélaga. Í samræmi við tillögur sveitarfélaganefndar, sem síðar var skipuð, var sveitarstjórnarlögum breytt og bráðabirgðaákvæði bætt inn um kosningu í sveitarfélögum um sameiningartillögur umdæmanefnda sem skipaðar voru í hverjum landshluta fyrir sig.

Þrátt fyrir að umræddar kosningar hafi ekki leitt til þeirrar fækkunar sveitarfélaga sem að var stefnt í upphafi hefur í kjölfarið átt sér stað umtalsverð sameining sveitarfélaga og þeim fækkað úr 196 árið 1993 í 104 á yfirstandandi ári. Á hinn bóginn er ljóst að þær sameiningar sveitarfélaga sem orðið hafa á síðustu árum hafa í mörgum tilvikum ekki verið nægilega víðtækar til að ná því marki að sveitarfélög myndi heildstæð atvinnu- og þjónustusvæði, svo sem mögulegt er vegna landfræðilegra aðstæðna.

Skjal fyrir Acrobat ReaderBreytingar á sveitarfélagamörkum 1905-2004


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica