Uppskeruhátíð á Akureyri
Uppskeruhátíð í tilefni lok Evrópuárs jafnra tækifæra var haldin á Akureyri en öflugt starf í mannréttindamálum hefur verið unnið þar í grunnskólum bæjarins á síðastliðnu ári.
Hátíðin var haldin í fjórum skólum í bænum, Oddeyrarskóla, Lundaskóla, Brekkuskóla og Giljaskóla. Dagskráin var fjölbreytt þar sem bæði var fjallað um alvara lífsins og einnig slegið á létta strengi. Hjólastólasveitin var með uppistand með Leifi Leifssyni og Erni Sigurðarsyni í farbroddi og þau Jorge Montalov og Lísa Hai Yen Ingadóttir sögðu nemendum hvernig það var að flytja til nýs lands en Jorge kemur frá Kólumbíu og Lísa frá Víetnam. Ingibjörg Heiðdal og Kristín Hanna Bjarnadóttir sögð frá áfanga í lífsleikni í skólanum sínum en þær hittu reglulega tvær aldraðar konur. Ingibjörg og Kristín töldu að sú reynsla hafði aukið víðsýni þeirra bæði gagnvart sjálfboðavinnu og ekki síður fyrir því að eldra fólk hefur margt til málanna að leggja. Nemendur í Brekkuskóla bjuggu til stuttmynd í tilefni af uppskeruhátíðinni þar sem fjallað var um rétt hvers einstakling til jafnra tækifæra. Börnin fengu þjálfun í því hvernig á að undirbúa sig undir að taka viðtöl. Þau fóru síðan víðs vegar um bæinn og tók viðtöl við einstaklinga sem voru fatlaðir, samkynhneigðir, aldraðir og af erlendum uppruna.
Nemendurnir tóku einnig viðtöl við einstaklinga sem starfa við mannréttindamál og fóru þau á Alþjóðastofa, Jafnréttisstofa og ræddu einnig við þroskaþjálfara og aðstandendur einstaklinga sem njóta ekki við jafnra tækifæri.
