Að lifa af ofsóknir og ótta

Að lifa af ofsóknir og ótta: Kynnstu af eigin raun reynslu flóttamannsins

Þú gætir verið handtekinn, barinn og þvingaður til að skrifa undir játningu bara vegna þess að þú tókst þátt í friðsamlegri mótmælagöngu. Vegna ástæðuríks ótta um að eitthvað verra gæti komið fyrir þig ákveður þú þess vegna að flýja heimaland þitt í flýti með einn bakpoka á öxlinni. Eftir miklar hremmingar kemstu loksins til lands sem þú telur að sé öruggt en í því landi er talað skrýtið tungumál og þú þekkir engan. Þú veist ekki hvert skal halda. Hvernig áttu að sækja um hæli, finna húsnæði og atvinnu í nýja landinu? Hvernig áttu að sjá fyrir þér?

Þetta er aðeins hluti af þeim vandamálum sem spilendur í vefleikum Against all odds standa frammi fyrir. Leikurinn er ætlaður ungmennum á aldrinum 1416 ára og veitir þeim sýn inn í veruleika flóttamanna og þá lífsbaráttu sem þeir þurfa að heyja í heimalandi sínu, á flótta og við að aðlagast nýju samfélagi. Leikurinn er því ekki einungis gagnlegur til fræðslu um flóttamenn heldur einnig í almennri mannréttinda- og fjölmenningarkennslu.

Vefleikurinn er hannaður af Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og hefur hann fallið í góðan jarðveg hjá ungmennum í Evrópu sem segja leikinn gefa góða innsýn í það líf sem flóttamenn standa frammi fyrir. Þótt hann sé auðvitað ekki alveg raunverulegur eykur hann skilning spilenda á aðstæðum flóttamanna og hefur verið talinn miklu meira spennandi og raunverulegri heldur en að lesa um aðstæður flóttamanna í bókum.

Það eru ýmsar hindranir sem spilendur verða að yfirstíga í vefleiknum. Til að mynda getur verið mjög erfitt að flýja heimaland sitt í leit að vernd og aðstoð. Ef það tekst að flýja heimalandið og komast til annars lands þá þarf að takast á við erfiðleika sem fylgja því að koma í nýtt og ókunnugt samfélag, svo sem að læra nýtt tungumál og eignast nýja vini. Þátttakendur kynnast einnig hvernig það er að mæta fordómum og mismunun á götu úti, sækja um starf og í raun að byrja nýtt líf.

Leiknum er í raun skipt í þrjá hluta. Í fyrsta hluta setur leikmaðurinn sig í spor flóttamannsins eins og hefur verið lýst hér að ofan. Í öðrum hluta eru viðtöl og greinar um mannréttindi og málefni tengd flóttamönnum. Í þriðja hluta er kennarahandbók með verkefnum tengdum leiknum. Hér til hliðar má sjá dæmi um þrjú verkefni sem kennarar og nemendur reyna að leysa í sameiningu.

Rauði kross Íslands og Mannréttindaskrifstofa Íslands, í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, munu þýða og staðfæra vefleikinn Against all odds. Félagsmálaráðuneytið hefur meðal annars lagt sitt af mörkum til útgáfunnar. Leikurinn var upprunalega þróaður á sænsku með stuðningi fyrirtækisins Statoil en hefur nú verið þýddur á norsku, þýsku og grísku og unnið er að því að þýða hann á ensku, dönsku og frönsku.

  • Rauði krossinn og Mannréttindaskrifstofan hafa átt samráð við nokkra forsvarsmenn grunnskóla í Reykjavík sem lýst hafa miklum áhuga á að fá leikinn til kennslu. Nánar er hægt á fræðast um Against all Odds á http://www.motallaodds.org/

 

 


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: