Ár jafnra tækifæra kynnt fyrir jafningafræðslunni í Hinu húsinu
Þann 8. júní voru helstu málaflokkar Árs jafnra tækifæra kynnt fyrir jafningafræðslunni í Hinu húsinu. Ingólfur V. Gíslason frá Jafnréttisstofu hélt meðal annars fyrirlestur um jafnrétti kynjanna. Hann fjallaði um stöðu kvenna almennt í heiminum og fornar hugmyndir um eðli kvenna sem birtust meðal annars í bók eftir Fritz Kahn, en hann vildi meina að konan væri í eðli sínu mitt á milli barns og karlmanns. Í fyrirlestrinum fór Ingólfur yfir athyglisverða tölfræði varðandi jafnrétti kvenna og karla og kemur þar meðal annars fram gífurleg aukning kvenna á vinnumarkaðnum frá 1960 og fram til dagsins í dag. Ingólfur fjallaði einnig um rannsókn sína á hlut karlmanna í heimilisstörfum og er hægt að finna brot úr svörum svarenda í glærunum hér að neðan auk annarra upplýsinga úr fyrirlestrinum.
Glærur úr fyrirlestri Ingólfs V. Gíslasonar um jafnrétti 