Almennt

Þjónusta við fötluð börn og fullorðna

Þau drög að stefnu og framkvæmdaáætlun sem hér birtist er sett fram samkvæmt lögum um málefni fatlaðra sem kveða á um að félagsmálaráðuneytið skuli annast stefnumótun og gerð heildaráætlana í málaflokknum. Tímabært þótti orðið að endurskoða þá hugmyndafræði sem unnið hefur verið eftir í ljósi þess að aldarfjórðungur er liðinn síðan grundvallaratriði hennar voru sett fram með lögum um aðstoð við þroskahefta.

Þá er þess að geta að Evrópuár fatlaðra 2003 var vettvangur frjórra umræðna um málefni fatlaðs fólks og margvíslegra kynninga, ráðstefna og annarra atburða í þeim efnum á vegum félagsmálaráðuneytisins, hagsmunasamtaka fatlaðs fólks, aðstandenda þess og annarra aðila. Markmið ársins var að vekja athygli á stöðu þeirra sem búa við fötlun og leggja línurnar um á hvað skyldi lögð áhersla í frekari uppbyggingu. Því má segja að sú stefnumótun sem fjallað er um í þessari skýrslu sé að nokkru leyti afsprengi Evrópuárs fatlaðra.

Stefnudrögin sem hér er kynnt og áætlanir þeim tengd ná einungis til þess hluta málefna fatlaðra barna og fullorðinna sem er á forræði og ábyrgð félagsmálaráðuneytisins, þ.e. til þeirra málaflokka sem lög um málefni fatlaðra taka til. Því er ekki eða aðeins að litlu leyti fjallað um þá mikilvægu málaflokka sem menntamál og heilbrigðismál eru þar eð þeir heyra undir önnur ráðuneyti sem kunnugt er.




Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: