Fréttir

9/5/2012 : Ályktun velferðarvaktarinnar til velferðarráðherra og ríkisstjórnar um aðgerðir í þágu efnalítilla barnafjölskyldna

Í bréfi vaktarinnar er  vakin athygli á að þrátt fyrir almennar aðgerðir stjórnvalda og ýmis sértæk úrræði hafi ekki náðst að leysa vanda heimila í miklum greiðsluerfiðleikum, sbr. lokaniðurstöður greiningar Seðlabankans á stöðu íslenskra heimila í aðdraganda og kjölfar hrunsins. Lesa meira

9/5/2012 : Velferðarvaktin fjallar um stöðu aldraðra og hvað megi betur fara

Vaktin fékk góða gesti á fund sinn þann 8. maí síðast liðinn þar sem fjallað var um þau atriði sem helst brenna á öldruðum.  Á fundinn komu Eyjólfur Eysteinsson formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum, Unnar Stefánsson formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. og Jóna Valgerður Kristjánsdóttir formaður Landssambands eldri borgara, sem flutti meðfylgjandi erindi Lesa meira

11/4/2012 : Staða vinnu við endurskoðun laga um almannatryggingar

Á 63. fundi sínum 13. mars síðast liðinn fjallaði velferðarvaktin um endurskoðun laga um almannatryggingar. Árni Gunnarsson formaður starfshóps á vegum velferðarráðherra sem vinnur að endurskoðun laganna kynnti verkefnið og greindi frá hugleiðingum sínum í tengslum við velferð og almannatryggingar. Hér má sjá erindi Árna.

Lesa meira

29/3/2012 : Almannatryggingakerfið og endurskoðun þess

Ágúst Þór Sigurðsson, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu, gerði grein fyrir uppbyggingu almannatryggingakerfisins og vinnu við endurskoðun þess sem nú stendur yfir á fundi velferðarvaktarinnar nýlega. Glærur frá kynningu Ágústs Þórs eru aðgengilegar hér. Lesa meira

8/3/2012 : Jákvæð sálfræði

Á fundi velferðarvaktarinnar 28. febrúar sl. kynnti Hrefna Guðmundsdóttir MA í félagssálfræði og formaður félags um jákvæða sálfræði hugmyndafræðina sem liggur að baki jákvæðri sálfræði sem fræðigrein.

Lesa meira
Fólksfjöldi

20/2/2012 : Félagsvísar kynntir í fyrsta sinn á Íslandi – mikilvægt stjórntæki

Velferðarráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í liðinni viku nýja skýrslu um félagsvísa sem stefnt er að því að safna og birta reglulega. Félagsvísarnir eiga að auðvelda aðgengi stjórnvalda og hagsmunaaðila að skilgreindum upplýsingum sem varpa ljósi á þjóðfélagsástandið og styðja við stefnumótun stjórnvalda.

Lesa meira

14/2/2012 : Hjálparstarf kirkjunnar

Á fundi velferðarvaktarinnar 31. janúar sl. fjallaði Vilborg Oddsdóttir um hjálparstarf kirkjunnar á Íslandi á árinu 22011 og hvernig notkun gjafakorta hefur reynst.

Lesa meira

13/2/2012 : Fjárhagslega staða sveitarfélaga og gjaldskrárbreytingar

Á fundi velferðarvaktarinnar 31. janúar sl. var fjallað um Fjárhagslega stöðu sveitarfélaganna og gjaldskrárbreytingar þeirra 2012.

Lesa meira

16/1/2012 : Staða mála hjá Umboðsmanni skuldara 1. janúar 2012

Á fundi velferðarvaktarinnar 3. janúar 2012 var meðal annars fjallað um stöðu mála hjá Umboðsmanni skuldara. Á þessu minnisblaði frá umboðsmanni má sjá yfirlit yfir málin og stöðu þeirra.

Lesa meira

15/11/2011 : Áskorun frá velferðarvaktinni um aðgæslu þegar ákvarðanir eru teknar í hagræðingarskyni

Á fundi velferðarvaktarinnar 1. nóvember síðast liðinn var samþykkt að senda stjórnvöldum áskorum um aðgát við gerð fjárhagsáætlana vegna ársins 2012. Velferðarvaktin sendi stjórnvöldum samhljóða bréf fyrir ári síðan. Lesa meira

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: