Norræn ráðstefna um áhrif kreppu á húsnæðismál, heimili og velferð
Rætt verður um áhrif alþjóðlegu fjármálakreppunnar á húsnæðismarkaðinn á Norðurlöndunum, afleiðingar hennar á velferðarkerfin, áhrif á afkomu heimilanna og möguleg áhrif kreppunnar á stefnumótun þjóðanna í húsnæðismálum vegna breyttra forsendna á norrænni ráðstefnu sem fram fer á Hótel Nordica í Reykjavík 26. nóvember n.k.

Ráðstefnan er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar en Íslendingar gegna formennsku í nefndinni á árinu 2009. Félags- og tryggingamálaráðuneytið skipuleggur ráðstefnuna í samstarfi við Íbúðalánasjóð og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Ráðstefnan er öllum opin. Erindi og umræður verða á Norðurlandamálum og ensku og er boðið upp á túlkun á Norðurlandamálum.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna