Um velferðarvaktina

Um velferðarvaktina

Skipunarbréf Velferðarvaktarinnar

Stýrihópur um velferðarvakt var skipaður með bréfi velferðarráðherra 17. febrúar 2009.

Velferðarráðherra gaf út nýtt skipunarbréf um hlutverk stýrihópsins 8. október 2010 sem er svohljóðandi:

Stýrihópnum er ætlað að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum efnahagshrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna. Stýrihópurinn er ráðgefandi fyrir félags- og tryggingamálaráðherra sem og stjórnvöld. Gert er ráð fyrir að hópurinn afhendi ráðherra stöðuskýrslur með reglubundnum hætti sem fjalli eftir atvikum um afmörkuð viðfangsefni og leggi fram tillögur til úrbóta sem stjórnvöld taki afstöðu til hverju sinni. Hópurinn skal fylgjast með framvindu tillagnanna.

Stýrihópurinn hefur upplýsingarskyldu gagnvart stjórnvöldum jafnt sem almenningi og skal miðla upplýsingum til þeirra með markvissum hætti.

Að ári liðnu, þann 1. nóvember 2011, verði starf og skipun stýrihópsins metið og endurskoðað og ákvörðun tekin um framhald starfsins.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra



Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: