Fréttir

Straumhvörf í þjónustu við geðfatlaða í Reykjavík

28/8/2008

Undirritunin fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Ráðherra gerði grein fyrir umfangi verkefnisins í ávarpi sínu og kom fram að þetta væri stærsta verkefni sem sveitarfélag tekur að sér með þjónustusamningi við ríkið á sviði þjónustu við geðfatlaða. Yfirlýsingin felur í sér að borgin muni taka að sér framkvæmd allrar þjónustu við geðfatlaða á næsta ári. Hins vegar var undirritaður þjónustusamningur um að borgin taki nú þegar að sér alla stoðþjónustu við 44 geðfatlaða einstaklinga og sjái um útvegun húsnæðis fyrir þá með yfirtöku verkefna átaksverkefnisins Straumhvarfa í Reykjavík og verður útvegun húsnæðis hraðað og lýkur á næsta ári í stað ársins 2010.

Ráðherra lagði áherslu á hvað þetta fæli í sér fyrir notendur þjónustunnar og sagði m.a. „Það sem mestu skiptir er að þjónustan verður á einni hendi, samþætt og þar með aðgengilegri fyrir notendur. Að baki þessum breytingum liggur sú hugmyndafræði sem mótuð hefur verið hjá Straumhvörfum í samvinnu við hagsmunasamtök geðfatlaðra að færa beri þjónustu við fólk með geðraskanir eftir því sem kostur er út í samfélagið frá hefðbundnum sjúkrastofnunum. Þannig sé unnt að rjúfa einangrun, efla sjálfstæði fólksins og virkja reynslu þeirra og þekkingu til batahvetjandi viðfangsefna.“

Tenging frá vef ráðuneytisinsÁvarp ráðherra við undirritun samnings....



Senda grein

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: