Ýmislegt

Til sveitarfélaga

Ákvörðun um að hefja endurskoðun á verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga var tekin á samráðsfundi ríkis og sveitarfélaga sem haldinn var 16. febrúar 2007. Fundinn sátu meðal annarra félagsmálaráðherra, fjármálaráðherra, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og framkvæmdastjóri Sambandsins. Frumkvæðið kom frá sveitarfélögunum og niðurstaða fundarins var að hefja sameiginlega vinnu og skoðun á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og rætt sérstaklega um þjónustu við fatlaða, öldrunarmál og menntamál í því sambandi. Þegar í upphafi var ákveðið að einbeita sér að þjónustu við fatlaða og öldrunarmálum. Tilfærslunni er stjórnað sameiginlega af ríki og sveitarfélögum.Verkefnisstjórn skipuð fulltrúum beggja aðila stýrir verkefninu, fjallar um greiningu kostnaðarþátta, samningagerð og tímasetningar vegna yfirfærslunnar. Af hálfu sveitarfélaganna sitja í verkefnisstjórninni Lúðvík Geirsson, Sigrún Björk Jakobsdóttir og Stella K. Víðisdóttir. Með verkefnisstjórn starfa fagnefndir eftir þörfum. Nú eru að störfum nefndir um  þjónustu við fatlaða, félagslegan þátt öldrunarþjónustu og starfsmannamál.

Fjölmennt málþing um yfirfærsluna var haldið á Nordica Hotel 20. maí 2009. Kynningarefni og niðurstöður málþingsins er á finna hér: http://www.velferdarraduneyti.is/radstefnur/nr/4407 . Auk þess hefur málið verið til umfjöllunar á tveimur landsþingum sveitarfélaga og að minnsta kosti einu sinni á fjármálaráðstefnu.


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica