Hoppa yfir valmynd
21. desember 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir árlega eftir umsóknum um framlög úr sjóðnum.  Hlutverk Framkvæmdasjóðs aldraðra er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 468/2014 um Framkvæmdasjóð aldraðra. Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr honum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau verkefni sem heimilt er að veita framlög til.

Við ákvörðun um úthlutun er stefna heilbrigðisráðherra í öldrunarmálum höfð til hliðsjónar.

Umsóknir um styrki árið 2016: Umsóknarfrestur rann út 1. febrúar 2016.

Mikilvægt er að vanda til umsókna og skila nauðsynlegum upplýsingum og fylgiskjölum innan tilskilins frests. Ekki verður tekið við gögnum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Umsækjendur skulu sækja um styrk á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins en umsóknareyðublöð um framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra eru þrjú:

 Athugið að mikilvægt er að velja rétt eyðublað og að fylla í öll svæði sem merkt eru með rauðri stjörnu.

Umsækjendur geta nýskráð sig undir nýskráning eða farið beint í innskráning og skráð sig hafi þeir skráð sig áður á eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Einnig geta umsækjendur skráð sig inn með Íslykli.

Sjá nánari leiðbeiningar um notkun eyðublaðavefsins

Athugið að eyðublaðið þarf  vista reglulega meðan á vinnslu stendur en umsókn berst ekki ráðuneytinu fyrr en umsóknin hefur verið send.

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum