Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2013 Innviðaráðuneytið

Leyfi: Umsókn um leyfi til að reka leigumiðlun eða endurnýjun slíks leyfis

Skilyrði fyrir því að hljóta leyfi til reksturs leigumiðlunar er að viðkomandi hafi lokið prófi sem staðfestir að hann hafi góða þekkingu á húsaleigulögum, lögum um húsaleigubætur, lögum um fjöleignarhús, kunnáttu í bókhaldi ásamt hagnýtum atriðum sem reynt getur á við leigu húsnæðis, s.s. gerð umboða, þinglýsingu og um skuldbindingargildi samninga. Leyfi til að reka leigumiðlun er gefið út til fimm ára í senn og krefst þá endurnýjunar.

Umsókn um leyfi til að reka leigumiðlun skal fylgja:

  • Prófskírteini af námskeiði til réttinda leigumiðlunar
  • Vottorð um búsforræði (fæst hjá Héraðsdómi og sýslumönnum)
  • Vottorð tryggingafélags um fullnægjandi tryggingu

Nánar er fjallað um leigumiðlun í XV. kafla húsaleigulaga nr. 36/1994 og reglugerð um leigumiðlun nr. 675/1994.

Umsækjandi greiðir kostnað af útgáfu leyfis sem er 8.300 kr. Kostnaður vegna endurnýjunar leyfis er 1.650 kr.

Rafrænt eyðublað til að sækja um leyfi til að reka leigumiðlun eða endurnýja slíkt leyfi er aðgengilegt á eyðublaðavef stjórnarráðsins; http://minarsidur.stjr.is .

  1. Aðgangur að eyðublaðavefnum er veittur á kennitölu einstaklinga.
  2. Umsækjendur velja flipann Nýskráning og skrá þar inn kennitölu og netfang og velja sér lykilorð. Umsækjendur fá þá sendan tölvupóst á uppgefið netfang þar sem þeir staðfesta skráninguna.
  3. Þegar skráning hefur verið staðfest skrá umsækjendur sig inn með kennitölu og lykilorði undir Innskráning og velja síðan flipann Eyðublöð.
  4. Sjá einnig nánari leiðbeiningar um notkun eyðublaðavefsins
    Athugið að eyðublaðið má vista meðan á vinnslu stendur en umsókn berst ekki ráðuneytinu fyrr en umsóknin hefur verið send.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum