Hoppa yfir valmynd
10. maí 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Brynhildur S. Björnsdóttir nýr stjórnarformaður Sjúkratrygginga Íslands

Brynhildur S. BjörnsdóttirÓttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur skipað Brynhildi S. Björnsdóttur formann stjórnar Sjúkratrygginga Íslands. Fyrsti fundur nýs formanns með stjórn stofnunarinnar verður haldinn í dag. Brynhildur tekur við stjórnarformennskunni af Hákoni Stefánssyni lögfræðingi, en hann tekur sæti sem aðalmaður í stjórninni. Brynhildur er framkvæmdastjóri hjá GG Verk ehf. Hún er með menntun á sviði stjórnunar og stefnumótunar. Hún sótti nám í Harvard Business School árið 2016, lauk MSc. gráðu frá Háskóla Íslands í stjórnun og stefnumótun árið 2009 og BA frá Háskólanum á Bifröst í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði árið 2007. Hún var stjórnarformaður Bjartrar framtíðar 2015-2016 og hefur átt sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Bjarta framtíð.

Heilbrigðisráðherra skipar stjórn Sjúkratrygginga Íslands samkvæmt lögum um sjúkratryggingar nr. 112/2008. Hlutverk hennar er að staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og marka henni langtímastefnu. Stjórnin skal hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar og að rekstur hennar sé innan ramma fjárlaga á hverjum tíma. 

Formaður stjórnar Sjúkratrygginga Íslands skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi stofnunarinnar og gera honum viðvart ef starfsemi og þjónusta er ekki í samræmi við ákvæði laga og ef rekstur hennar og greiðslur til sjúkratryggðra eru ekki í samræmi við fjárlög. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum