Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða

Í reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, er mælt fyrir um að tekju- og eignamörk samkvæmt reglugerðinni taki breytingum samkvæmt breytingum á vísitölu neysluverðs 1. janúar ár hvert. Jafnframt er mælt fyrir um að félagsmálaráðherra (nú velferðarráðherra) láti árlega reikna út og birta nýjar fjárhæðir.

Við útreikning á tekju- og eignamörkum er miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu frá ársbyrjun 2010 til ársbyrjunar 2011. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands nemur hækkunin 2,46%.

Frá og með 1. janúar 2011 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, eftirfarandi:

  • Tekjur fyrir einstakling kr. 3.699.000.-
  • Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu kr. 619.000.-
  • Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk kr. 5.179.000.-
  • Eignamörk kr. 3.993.000.-

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum