Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Blaðagrein velferðarráðherra í tilefni af alþjóðlegum krabbameinsdegi


Krabbamein snertir allar fjölskyldur

Grein Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra sem birtist í Fréttablaðinu 4. febrúar í tilefni af alþjóðlegum krabbameinsdegi


Dag hvern greinast þrír eða fjórir Íslendingar að jafnaði með krabbamein. Þetta er sjúkdómur sem snertir allar fjölskyldur landsins fyrr eða síðar með einhverjum hætti. Mikilvægt er að gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir sjúkdóminn, greina hann snemma og veita bestu fáanlegu meðferð. Eins er mikils virði að styðja sjúklinga og aðstandendur þeirra til að takast á við breyttar aðstæður.

Íslendingar standa mjög framarlega í öllum samanburði milli landa á þessu sviði. Sem dæmi má nefna að leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum er á heimsmælikvarða, bið sjúklinga eftir að komast í viðeigandi meðferð er óvíða styttri en hér, meðferðin er markviss og lífshorfur sjúklinga með því besta sem þekkist.

Í tilefni af alþjóðlegum krabbameinsdegi, 4. febrúar, legg ég áherslu á að ekkert verður gefið eftir í baráttunni við þennan vágest. Til marks um það má nefna ályktun Alþingis um bólusetningu gegn leghálskrabbameini sem fyrirhugað er að hefjist á þessu ári. Þá er ástæða til að fagna sérstaklega þeim mikla árangri sem náðst hefur í tóbaksvörnum. Nýjustu kannanir sýna að einungis sjöundi hver fullorðinn Íslendingur reykir daglega sem er veruleg breyting frá því sem var fyrir örfáum áratugum. Þessi árangur ætti að vera okkur hvatning á öðrum sviðum forvarna þar sem víða er verk að vinna.

Áætlun um aðgerðir og markmið í baráttunni við krabbamein

Skýr stefna og skilgreind og mælanleg markmið eru mikilvæg forsenda fyrir árangri. Íslensk heilbrigðisáætlun er leiðarvísir fyrir heilbrigðiskerfið og nú er unnið að endurskoðun hennar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hvetur þjóðir til að setja sér sérstaka áætlun um aðgerðir og markmið í baráttunni við krabbamein og margar þjóðir hafa gert það. Ég tel þetta skynsamlegt enda mikið í húfi og hef því ákveðið að ráðast í þetta verkefni. Það er við hæfi að tilkynna þessa ákvörðun á alþjóðlegum krabbameinsdegi og jafnframt að unnið verði að málinu á þessu ári, þegar Krabbameinsfélag Íslands fagnar sextíu ára afmæli.

Ég hvet landsmenn til að huga að heilbrigðu lífi á allan hátt, vera vakandi fyrir einkennum krabbameins og hika ekki við að leita læknis ef minnsti grunur vaknar. Við höfum staðið okkur vel í þessum málaflokki og ætlum að vera áfram í fremstu röð í heiminum.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum