Hoppa yfir valmynd
1. júní 2011 Heilbrigðisráðuneytið

Viðbragðshópur vegna misnotkunar lyfseðilsskyldra lyfja

Velferðarráðherra hefur skipað viðbragðshóp til að stemma stigu við misnotkun  methýlphenidat-lyfja (meðal annars Ritalin og Concerta) og annarra lyfseðilsskyldra lyfja  sem sýnt er  notuð eru til sölu og dreifingar meðal fíkla á Íslandi.

Hinn 10. júní skal hópurinn leggja fram tillögur til ráðherra um aðgerðir sem hægt er að grípa til nú þegar, en beini svo vinnu sinni að aðgerðum til lengri tíma.

Tillögurnar skulu ná til aðgerða varðandi eftirlit, skráningu, aðgengi að upplýsingum, takmörkun á aðgengi og bráðaúrræði á meðferðarstofnunum.

Hópinn skipa:

  • Margrét Björnsdóttir, skipuð af velferðarráðherra, formaður
  • Einar Magnússon, skipaður af velferðarráðherra
  • Lára Björnsdóttir, skipuð af velferðarráðherra
  • Geir Gunnlaugsson, tiln. af landlæknisembættinu
  • Ingunn Björnsdóttir, tiln. af Lyfjafræðingafélagi Íslands
  • Þórarinn Tyrfingsson, tiln. af Læknafélagi Íslands
  • Steingrímur Ari Arason, tiln. af Sjúkratryggingum Íslands

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum