Hoppa yfir valmynd
31. ágúst 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Breyttur opnunartími Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar

Athygli er vakin á breyttum opnunartíma hjá Sjúkratryggingum Íslands og Tryggingastofnun ríkisins.

Afgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar verður framvegis opin frá kl. 10:00 til 15.30. Þjónustumiðstöðin að Laugavegi 114, Hjálpartækjamiðstöðin að Vínlandsleið 16 og símaþjónustan verða opnar þennan tíma alla virka daga.

Skiptiborð Tryggingastofnunar og Sjúkratrygginga Íslands, þar með talið skiptiborð Hjálpartækjamiðstöðvar, verður hins vegar virkt frá kl. 10.00 til 16.00 alla virka daga.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum