Hoppa yfir valmynd
1. september 2011 Heilbrigðisráðuneytið

Breyttar reglur um viðvörunarmerkingar á tóbaksumbúðum

Skylt verður að birta ljósmyndir í lit á öllum umbúðum sem innihalda tóbaksvörur til að undirstrika skaðsemi vörunnar. Ákvæði um þetta eru í nýrri reglugerð sem tekið hefur gildi um mynd- og textaviðvaranir á tóbaki og mælingar á hámarki skaðlegra tóbaksefna, nr. 790/2011.

Ákvörðun velferðarráðherra um að setja þetta ákvæði í reglugerð er í samræmi við ákvörðun Evrópusambandsins frá 5. september 2003. Þar er kveðið á um notkun ljósmynda í lit eða annars konar skýringarmynda í viðvörunarmerkingum á tóbakspökkum til viðbótar þeim aðvörunum sem þegar eru fyrir hendi. Hverju ríki hefur þó verið í sjálfsvald sett hvort það geri kröfu um merkingar af þessu tagi. Með breytingum á lögum um tóbaksvarnir sem gerðar voru árið 2009 var bætt við ákvæði til að tryggja þessari ákvörðun stoð í íslenskum lögum.

Tóbaksframleiðendur skulu standa straum af kostnaði við merkingarnar auk kostnaðar sem hlýst af mælingum og prófunum sem kveðið er á um í reglugerðinni. Þeim er jafnframt gert að láta landlækni árlega í té skrá yfir öll innihaldsefni, ásamt magni þeirra, sem eru notuð við framleiðslu á þessum tóbaksvörum, eftir vöruheiti og tegund.

Gildistaka
Heimilt verður að flytja inn sígarettur sem merktar eru í samræmi við eldri reglugerð frá 2003 um viðvörunarmerkingar á tóbaki til ársloka 2012 og hafa í sölu til 31. júlí 2013.

Aðrar tóbaksvörur sem merktar eru í samræmi við sömu reglugerð má hafa í sölu til og með 31. desember 2013.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum