Hoppa yfir valmynd
6. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Nám er vinnandi vegur: Fjöldi ungmenna og atvinnuleitenda hefur nám

Nám er vinnandi vegur - velferðarráðherra
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kynnir verkefnið á Háskólatorgi

Rúmlega 1.100 atvinnuleitendur hefja nám í haust á grundvelli átaksins Nám er vinnandi vegur og um 1.040 ungmenni yngri en 25 ára hafa skráð sig í framhaldsskóla í tengslum við átakið. Samningur um framkvæmd verkefnisins var undirritaður í dag.

Að samningnum standa stjórnvöld, framhaldsskólar og háskólar. Undirritunin fór fram á Háskólatorginu í Háskóla Íslands og voru viðstaddir undirritunina mennta- og menningarmálaráðherra, velferðarráðherra, forsvarsmenn skóla og aðilar vinnumarkaðarins.

Fyrsta hluta átaksins, sem fól í sér eftirfarandi bráðaaðgerðir, er nú lokið samkvæmt áætlun:

Annars vegar að tryggja öllum yngri en 25 ára sem eftir leita og uppfylla inntökuskilyrði nám við hæfi í framhaldsskólum nú í haust. Alls hafa 27.715 nemendur verið innritaðir til náms við framhaldsskóla haustið 2011 sem er fjölgun um 1.534 milli ára. Af þeim eru 1.141 sem hefur verið innritaður á grundvelli átaksins. 

Hins vegar að skapa ný námstækifæri fyrir allt að 1.000 atvinnuleitendur haustið 2011 og næstu tvö ár þar á eftir í framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og framhaldsfræðslu. Alls hefja 1.042 atvinnuleitendur nám í haust. Vinnumálastofnun hefur gert 960 námssamninga á grundvelli átaksins við atvinnuleitendur. Að auki eru 82 atvinnuleitendur til viðbótar að hefja nám án námssamnings.

Svandís Svavarsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirrita samninginnAf atvinnuleitendum sem gert hafa námssamninga eru 53% konur en 47% karlar. Þá eiga 718 lögheimili á höfuðborgarsvæðinu en 242 á landsbyggðinni, þar af 103 á Suðurnesjum.

Alls hefja 527 atvinnuleitendur nám við framhaldsskóla, flestir við Tækniskólann eða 117. Sextíu hefja nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, 51 við Iðnskólann í Hafnarfirði, 50 við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, 47 við Fjölbrautaskólann í Ármúla, 47 við Menntaskólann í Kópavogi og 40 við Borgarholtsskóla.

Þeir atvinnuleitendur sem hefja háskólanám eru 320, 259 í grunnámi og 61 í framhaldsnámi. Þá hefja 113 nám í frumgreinadeildum háskólanna og Keilis. Flestir, eða 184, hefja nám við Háskóla Íslands, 103 við Háskólann í Reykjavík, 34 við Háskólann á Akureyri og 22 í Háskólanum á Bifröst. Í frumgreinanámi hefja flestir nám við Keili eða 39.

Á HáskólatorgiAtvinnuleitendur sem hefja nám í haust halda bótum sínum til áramóta. Þá mun þeim sem stunda lánshæft nám Lánasjóði íslenskra námsmanna standa til boða framfærslulán frá sjóðnum. Öðrum verður tryggð framfærsla með sérstöku úrræði sem nú er unnið að því að útfæra og fjármagnað verður af Atvinnuleysistryggingasjóði.

Átakið byggist á tillögum samráðshóps ráðuneyta, allra þingflokka, aðila vinnumarkaðarins og hreyfinga námsmanna sem forsætisráðherra skipaði og er liður í yfirlýsingu kjarasamninga sem undirritaðir voru í maí síðastliðnum.

Sérstakur aðgerðahópur stýrir framkvæmd verkefnisins. Hópnum er stýrt af fulltrúum velferðarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Auk þeirra eru fulltrúar fjármálaráðuneytis, Vinnumálastofnunar og aðila vinnumarkaðarins í hópnum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum