Hoppa yfir valmynd
21. október 2011 Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir til sveitarfélaga vegna þjónustu við börn

Styrkir til sveitarfélaga vegna aukinnar þjónustu
við langveik börn og börn með ADHD

 

Auglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Styrkir verða veittir á grundvelli samstarfssamnings félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmála­ráðu­­neytis, heilbrigðisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem var undirritaður 4. desember 2009. Sveitarfélög geta sótt um styrki vegna verkefna á eigin vegum eða sem unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök.

Tekið verður við einni sameiginlegri umsókn frá hverju sveitarfélagi. 

Í ljósi þess hve margar umsóknir hafa borist við fyrri úthlutanir þarf sveitarfélagið að forgangsraða þeim verkefnum sem sótt er um.

Styrkhæf verkefni eru:

  1. Verkefni sem fela í sér félagslega stuðningsþjónustu, svo sem liðveislu og skammtímavistun til samræmis við það sem fötluð börn eiga kosta á samkvæmt lögum um málefni fatlaðra.
  2. Verkefni sem hafa það markmið að gera langveikum börnum á leik- og grunnskólaaldri kleift að fá sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, þroskaþjálfun og/eða talþjálfun í skólum sínum þegar fagleg rök mæla með því.
  3. Verkefni sem fela í sér faglega leiðsögn sérfræðinga fyrir langveik börn á leik- og grunnskólaaldri sem ekki geta sótt skóla heilsu sinnar vegna.
  4. Verkefni sem fela í sér fræðslu og/eða stuðning fyrir kennara og annað starfsfólk skóla vegna nemenda með ADHD.
  5. Verkefni sem miða að bættri þjónustu leik- og grunnskóla við börn með ADHD.
  6. Önnur verkefni sem lögð er áhersla á í skýrslum tveggja starfshópa frá febrúar og apríl 2008 um þjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest.

Styrkveiting er ákveðin á grundvelli umsóknar og verður lögð megináhersla á að viðkomandi verkefni feli í sér, með beinum hætti, þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.

Gert er ráð fyrir að þeim verkefnum sem hljóta styrk að þessu sinni ljúki fyrir 31. desember 2012.

Frestur sveitarfélaga til að sækja um styrki rennur út 21. nóvember 2011.

Umsóknareyðublöð

Mælt er með notkun Acrobat Reader við útfyllingu eyðublaða á PDF formi. Notkun annarra forrita eða viðbóta við vafra geta valdið vandræðum með íslenska stafi. Vistið skjalið inn á tölvuna ykkar með því að hægri-smella á krækjuna og velja Vista sem/Save link as/Save taget as (mismunandi eftir vöfrum). Opnið síðan skjalið á venjulegan hátt í Acrobat Reader, fillið það út og vistið.

Athugið að einstakir aðilar geta ekki sótt um styrk til verkefnisstjórnar - sveitarfélag sækir um fyrir þeirra hönd.

Nánari upplýsingar veitir Björn Sigurbjörnsson, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu.

Sími: 545 8100,  netfang: [email protected]

Verkefnisstjórn.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum