Hoppa yfir valmynd
28. október 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Styrkir úr þróunarsjóði innflytjendamála

Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á eftirfarandi viðfangsefni:

  • Þróunarverkefni sem unnin eru í sveitarfélögum og miðast að því að auka aðgengi innflytjenda að samfélaginu.
  • Þróunarverkefni og rannsóknir sem vinna gegn fordómum, auka fjölmenningarlega færni og hvetja til virkrar þátttöku innflytjenda í samfélaginu.    

Önnur verkefni koma einnig til álita.

Styrkir verða almennt veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Grasrótar- og hagsmunafélög innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um í sjóðinn. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 10 milljónir króna. Styrkir geta verið að hámarki 75% af heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um á íslensku og ensku.

Umsóknarfrestur er til 25. nóvember 2011. Sótt skal um styrk á sérstöku umsóknareyðublaði sem er aðgengilegt á heimasíðu velferðarráðuneytisins. Þar er einnig að finna stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda, framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda og reglur þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýsingum um skilyrði styrkveitinga. Trúnaðar er gætt við meðferð umsókna.

Nánari upplýsingar fást í velferðarráðuneyti í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið [email protected]  

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum