Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2012 Heilbrigðisráðuneytið

Umsækjendur um stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri

Fjórir sóttu um stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri en umsóknarfrestur rann út 23. desember síðastliðinn. Forstjóri verður settur í eitt ár frá 1. febrúar 2012 meðan núverandi forstjóri, Halldór Jónsson er í leyfi. 

Þeir sem sóttu um stöðuna eru Jón Helgi Björnsson, Magnús Stefánsson, Valbjörn Steingrímsson og Þorvaldur Ingvarsson.

Í samræmi við 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007 mun nefnd sem skipuð er af velferðarráðherra fara yfir umsóknir og meta hæfni umsækjenda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum