Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Ríkisendurskoðun: Óskert þjónusta á hjúkrunarheimilum þrátt fyrir minni fjárveitingar

Á heimili fyrir aldraða
Á heimili fyrir aldraða

Ríkisendurskoðun segir í nýrri skýrslu um úttekt á rekstri hjúkrunarheimila á árunum 2008-2010 að þrátt fyrir lækkun fjárveitinga til þeirra verði hvorki séð að álag á starfsfólk hafi aukist á tímabilinu né að dregið hafi verið úr þjónustu við íbúa. Skýrslan var unnin að beiðni forsætisnefndar Alþingis. 

Úttekt Ríkisendurskoðunar náði einkum til 34 hjúkrunarheimila af samtals 43 sem starfrækt voru í landinu árið 2010 og fjallar um rekstur heimilanna, breytingar á tekjum þeirra, kostnaði og mönnun. Í frétt á vef Ríkisendurskoðunar um skýrsluna segir meðal annars:

„Opinberar fjárveitingar til hjúkrunarheimila drógust saman að raungildi milli áranna 2008 og 2010. Þrátt fyrir þetta tókst heimilunum almennt betur að laga rekstur sinn að tekjum seinna árið en hið fyrra. Ekki verður séð að álag á starfsmenn heimilanna hafi aukist á tímabilinu né að þjónusta við íbúa hafi skerst.“

Tekjur umræddra heimila eru að langstærstum hluta opinber framlög. Í skýrslunni kemur fram að þau jukust í heild um 6% milli áranna 2008 og 2010. Á sama tíma hækkaði vegin vísitala verðlags og launa um 12,5% sem þýðir að framlögin drógust saman að raungildi. Bent er á að heildartekjur heimilanna hafi aukist að jafnaði um 7% á tímabilinu og kostnaður um svipað hlutfall. Þá kemur fram að heimilinum gekk almennt betur að laga rekstur sinn að tekjum í lok tímabilsins en við upphaf þess.

Framboð hjúkrunarrýma á landsvísu stóð nánast í stað milli áranna 2008 og 2010 en á sama tíma fjölgaði ellilífeyrisþegum og meðalaldur þeirra hækkaði. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að engu að síður hafi fleiri aldraðir fengið hjúkrunarrými árið 2010 en árið 2008 og biðlistar styst:  

„Að jafnaði var umönnunarþörf íbúa á þeim 34 hjúkrunarheimilum sem úttekt Ríkisendurskoðunar náði til meiri síðara árið. Umönnunartími sem hver og einn íbúi fékk að meðaltali lengdist í samræmi við þetta. Þá fjölgaði ársverkum við umönnun nokkuð miðað við íbúafjölda heimilanna. Að mati Ríkisendurskoðunar verður því ekki séð að álag á starfsmenn hafi aukist né að þjónusta við íbúa hafi skerst á tímabilinu.“

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum