Hoppa yfir valmynd
7. maí 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Byrðum kreppunnar dreift á réttlátari hátt en víðast annars staðar

„Í samanburði við aðrar þjóðir hefur okkur tekist að dreifa byrðum kreppunnar á mun réttlátari hátt en víðast annars staðar, verja tekjulægri hópana og sporna við jafn umfangsmiklu atvinnuleysi og víðast varð raunin hjá öðrum þjóðum“ skrifar Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra í blaðagrein sem birtist í Fréttablaðinu um helgina.

Guðbjartur fjallar í greininni um nýja skýrslu sem Þjóðmálastofnun Háskóla Íslands vann fyrir velferðarráðuneytið og um áhrif fjármálahrunsins á lífskjör þjóðarinnar.


Guðbjartur Hannesson velferðarráðherraÞað skiptir máli hverjir stjórna

Grein Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra
Birtist í Fréttablaðinu 5.05.2012

 

Í nýrri skýrslu sem Þjóðmálastofnun Háskóla Íslands vann fyrir velferðarráðuneytið eru dregnar saman tölulegar upplýsingar um þróun íslensks samfélags á árunum fyrir og eftir hrun, ljósi varpað á áhrif hrunsins á ólíka tekjuhópa og hvernig stjórnvöldum hefur tekist það ætlunarverk sitt að verja kjör lægstu tekjuhópanna. Niðurstöðurnar eru afgerandi: Snúið hefur verið frá þeim fordæmalausa ójöfnuði sem jókst ört í tíð fyrri stjórnvalda. Kjararýrnum vegna kreppunnar hefur verið langminnst hjá þeim tekjulægstu og tekjuskattbyrði hefur minnkað hjá lágtekju- og millitekjuhópum, eða sex af hverjum tíu fjölskyldum í landinu. Í samanburði við aðrar þjóðir hefur okkur tekist að dreifa byrðum kreppunnar á mun réttlátari hátt en víðast annars staðar, verja tekjulægri hópana og sporna við jafn umfangsmiklu atvinnuleysi og víðast varð raunin hjá öðrum þjóðum

Fordæmalaus aukning ójöfnuðar

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að árin 1995-2007 jókst ójöfnuður hérlendis svo mjög að annað eins hefur ekki sést á Vesturlöndum og náði hámarki á hátindi loftbóluhagkerfisins árið 2007. Þá hafði skattbyrði hátekjuhópanna lækkað stöðugt meðan æ þyngri skattbyrðar voru lagðar á bök hinna tekjulágu. Í reynd var skattbyrði íslensks hátekjufólks óvenju létt í alþjóðlegum samanburði. 

Þessa óheillaþróun má rekja beint til ákvarðanna stjórnvalda sem með markvissum breytingum á skattkerfinu bjuggu til sannkallað velferðarkerfi hátekjufólks, enda jókst hlutdeild þeirra í þjóðarkökunni stöðugt á þessu tímabili. Árið 1995 var hlutur 10% tekjuhæstu fjölskyldna landsins í heildartekjum landsmanna tæplega 22% en árið 2007 féllu 40% af heildartekjum landsmanna í þeirra skaut. Ríkustu fjölskyldurnar, þ.e. það 1% sem hæstar tekjur hafði, fengu árið 1995 um 4% af heildartekjunum en um 20% árið 2007.

Ójöfnuður sprettur ekki af sjálfum sér

Efnahagslegur ójöfnuður leiðir til margþættra félagslegra vandamála og veldur um leið miklum kostnaði fyrir samfélagið allt. Þar sem ójöfnuður er mikill er glæpatíðni almennt hærri og margskonar heilsufarsvandamál algengari. Flest bendir líka til þess að undirrót þeirra efnahagsþrenginga sem Vesturlönd hafa gengið í gegnum á undanförum árum sé of mikil samþjöppun auðs og stigvaxandi ójöfnuður. Af þeirri reynslu verðum við að læra.

Ójöfnuður sprettur ekki af sjálfu sér. Þvert á móti ráða ákvarðanir stjórnvalda miklu í þeim efnum og því er mikilvægt að þau sinni þeirri skyldu sinni að afla greinargóðra upplýsinga um samfélagsþróunina, meðal annars um breytingar á tekjujöfnuði og bregðist við ef ójöfnuður fer úr böndunum líkt og hér gerðist á árunum fyrir hrun.

Framtíð byggð á jöfnuði

Hruni fjármálakerfisins á Íslandi fylgdi mesta kjaraskerðing sem orðið hefur hér á landi frá lýðveldisstofnun. Niðurstöður Þjóðmálastofnunar sýna hins vegar að þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður þá hafi okkur tekist betur en flestum öðrum þjóðum að verja velferðina og auka jöfnuð í samfélaginu. Gott samfélag byggist á jöfnuði og því ættu flestir að geta sameinast um það markmið að tryggja að bilið á milli þjóðfélagshópa breikki ekki á nýjan leik hér á landi.  Upplýst umræða um það hvernig stjórnmálin geta og hafa haft mótandi áhrif á þjóðfélagsgerðina og áhrif þeirra á lífsgæði okkar á hverjum tíma er forsenda þess að okkur takist að byggja upp sterkt og gott samfélag fyrir alla.  

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum