Hoppa yfir valmynd
23. maí 2012 Heilbrigðisráðuneytið

Bók um Krabbamein á Íslandi komin út í þriðja sinn

Bókin Krabbamein á Íslandi
Bókin Krabbamein á Íslandi

Krabbameinsfélag Ísland færði Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra að gjöf í dag bókina Krabbamein á Íslandi sem félagið gefur nú út í þriðja sinn. Bókin er jafnt ætluð leikum og lærðum en í henni er birt viðamikil tölfræði um krabbamein á Íslandi á aðgengilegan hátt, auk áhugaverða greina um sjúkdóminn. 

Krabbameinsskrá hefur verið starfrækt á Íslandi frá árinu 1954 og frá hefur Krabbameinsfélag Íslands annast rekstur hennar frá upphafi. Skráin hefur að geyma upplýsingar um öll ný krabbamein sem greinst hafa hjá þjóðinni frá árinu 1955. Eitt helsta hlutverk Krabbameinsskrárinnar er að stuðla að forvörnum og þjóna hagsmunum krabbameinssjúklinga með því að vera grunnur rannsókna á orsökum krabbameina, áhrifum forvarna og meðferðar. Þessi grunnur er jafnframt mikilvægur við stefnumörkun og forgangsröðun verkefna innan heilbrigðisþjónustunnar.

Bókin Krabbamein á Íslandi hefur komið út tvisvar áður. Texti þriðju útgáfunnar hefur verið endurskoðaður þótt framsetning efnis sé svipuð og áður. Allar tölulegar upplýsingar í bókinni byggjast á nýjustu tiltækum upplýsingum. Tveir gestahöfundar eiga greinar í bókinni: Stefán Pálmason tannlæknir fjallar um munnkrabbamein og þátt vörtuveira í myndun þeirra og Halla Skúladóttir krabbameinslæknir og yfirlæknir lyflækninga krabbameina á Landspítalanum fjallar um áhættuþætti krabbameina og forvarnir.  Nýmæli er í þessari þriðju útgáfu að þar er samantekt á ensku um það helsta sem einkennir faraldsfræði krabbameina á Íslandi og enskar skýringar eru við töflur og línurit.

Frá afhendingu bókarinnar Krabbamein á ÍslandiHöfundar bókarinnar eru Jón Gunnlaugur Jónasson og Laufey Tryggvadóttir. Þau fylgdu bókinni úr hlaði með nokkrum orðum þegar þau afhentu Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra fyrstu eintökin í dag ásamt Ragnheiði Haraldsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélags Íslands.

Guðbjartur sagði mikinn feng í útgáfu bókarinnar, enda væri greiður aðgangur að tölfræðilegum upplýsingum og ásamt öðrum fróðleik sem þar kæmi fram gott innlegg í baráttunni við krabbamein, hefði mikið fræðslugildi og væri góður grunnur að upplýstri umræðu um málefnið: „Þarna sjáum við líka svart á hvítu þann góða árangur sem náðst hefur á sviði forvarna og meðferðar við krabbameinum sem er afar ánægjulegt og mikils virði.“

Í formála bókarinnar kemur fram að hún eigi að gagnast öllum þeim sem vilja fræðast um krabbamein, bæði almenningi, heilbrigðisstéttum, fjölmiðlafólki, framhaldsskólanemum og háskólanemum, einkum í heilbrigðisgreinum.

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum