Hoppa yfir valmynd
11. júní 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Norrænir ráðherrar funda um heilbrigðismál og félagslega velferð

Fánar Norðurlandaþjóðanna. Ljósmynd: norden.org
Fánar Norðurlandaþjóðanna. Ljósmynd: norden.org

Ráðherrar heilbrigðis- og félagsmála á Norðurlöndunum sitja nú árlegan fund sinn í Bergen í Noregi þar sem rætt er um velferðarmál í víðu samhengi. Í viðræðum ráðherranna í dag lagði Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra áherslu á að jöfnuður og félagslegt réttlæti væru grundvallarforsendur hvers samfélags sem vill tryggja almenna velferð.

„Efnahagslegur ójöfnuður leiðir til margþættra félagslegra og heilsufarslegra vandamála og veldur um leið miklum kostnaði fyrir samfélagið allt. Þetta vitum við og því er óhætt að segja að íslenskt samfélag hefur ekki efni á ójöfnuði,“ sagði Guðbjartur meðal annars í ávarpi á fundi með norrænu ráðherrunum. Hann ræddi um hvernig íslensk stjórnvöld hefðu frá efnahagshruninu haustið 2008 reynt eftir megni að verja velferðarkerfið og auka jöfnuð í samfélaginu. Enn fremur talaði hann sérstaklega um aðgerðir stjórnvalda til að vinna gegn atvinnuleysi og alvarlegum afleiðingum þess, enda mikið í húfi: „Áhrif atvinnuleysis, sérstaklega þegar það er langvarandi, eru vel þekkt, jafnt fyrir einstaklingana sem í hlut eiga og samfélagið í heild. Félagsleg einangrun, fátækt, og örorka eru líklegar afleiðingar ef ekkert er að gert og í versta falli getur þetta jafnvel orðið hlutskipti margra kynslóða, líkt og dæmin sanna. Íslensk stjórnvöld hafa því lagt allt kapp á að sporna við atvinnuleysi með margvíslegum aðgerðum sem hafa skilað verulegum árangri.“

Ráðherrarnir töluðu allir um mikilvægi virkrar þátttöku fólks í samfélaginu og að tryggja þurfi að tilteknir hópar með veika stöðu verði ekki útundan. Þeir lýstu áhyggjum yfir því að nýgengi örorku fari enn vaxandi. Meginþungi þeirrar aukningar er vegna geðrænna vandamála og fyrir liggur að geðraskanir valda færniskerðingu fyrr á ævinni en aðrir sjúkdómar. Ráðherrarnir voru sammála um að átak sé nauðsynlegt til að taka á þessu vandamáli og beina sjónum sérstaklega að ungu fólki. Greina þurfi rót vandans og ráðast í aðgerðir til að efla stöðu þessa unga fólks þannig að það geti tekið virkan þátt á vinnumarkaði og í samfélaginu almennt.

Ráðherrarnir funda áfram á morgun þar sem þessi mál verða til frekari umræðu, auk umfjöllunar um gagnkvæm réttindi milli Norðurlandanna á sviði heilbrigðis- og félagsmála og fleiri málefni sem varða norrænt samstarf.

Síðar í kvöld verður tilkynnt hver hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin 2012 og þau afhent. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum